• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Login
Þriðjudagur, 6. júní 2023
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
Frettatiminn
No Result
View All Result

Tannverndarvika 2022

ritstjorn by ritstjorn
2. febrúar 2022
in Fréttir, Innlent
0
Share on FacebookShare on Twitter
Nú stendur yfir árleg tannverndarvika sem embætti landlæknis og Tannlæknafélag Íslands standa fyrir. Í tilefni af tannverndarvikunni hefur nýtt mælaborð tannheilsu verið birt á vef embættis landlæknis. Mælaborðið er gagnvirkt og birtir tölulegar upplýsingar um fjölda tannfyllinga hjá börnum sem mæta í reglulegt eftirliti hjá heimilistannlækni.

Mælaborðið byggir á gögnum frá Sjúkratryggingum Íslands og ná þau aftur til ársins 2005. Stefnt er að því að uppfæra mælaborðið árlega. Í tannverndarviku er foreldrum og forráðamönnum bent á að kostnaður vegna almennra tannlækninga barna er greiddur af Sjúkratryggingum Íslands, fyrir utan 2.500 kr. árlegt komugjald sem mest er greitt einu sinni á 12 mánaða tímabili.

Forsenda gjaldfrjálsra tannlækninga er að börn hafi heimilistannlækni og bera foreldrar ábyrgð á tímapöntun hjá heimilistannlækni og skráningu í Réttindagátt Sjúkratrygginga Íslands.

Í tannverndarviku eru stjórnendur leik-, grunn- og framhaldsskóla hvattir til að leggja áherslu á fræðslu, umfjöllun og viðburði sem tengjast tönnum og tannheilsu. Fræðsluefni og myndbönd um tannhirðu má nálgast á landlaeknir.is og heilsuvera.is.

Fyrirtæki sem flytja inn og selja tannhirðuvörur eru hvött til að nýta sér tannverndarvikuna til að kynna vörur sínar. Einnig eru stjórnendur verslana hvattir til að bjóða afsláttarkjör af tannhirðuvörum og hollri matvöru í tannverndarviku og afnema á sama tíma afsláttarkjör af sælgæti og súrum drykkjum.

  • Nánar á vef embættis landlæknis

Discussion about this post

  • ,,Ykkar verður minnst sem vesalinga sem nenntuð ekki eða þorðuð ekki“

    ,,Ykkar verður minnst sem vesalinga sem nenntuð ekki eða þorðuð ekki“

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • Líkfundurinn við Borgarnes

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • ,,Þess vegna sit ég hér og bölva“

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • Vann 78 milljónir í Lottóinu

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • Ragnar Þór boðar til mótmæla – ,,Rísum upp gegn óréttlætinu!“

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
ADVERTISEMENT

Fréttatíminn © 2023

No Result
View All Result
  • Home
  • Landing Page
  • Buy JNews
  • Support Forum
  • Contact Us

Fréttatíminn © 2023

Welcome Back!

Login to your account below

Forgotten Password?

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Log In
Are you sure want to unlock this post?
Unlock left : 0
Are you sure want to cancel subscription?