Klukkan 14:03 í dag barst lögreglunni á Norðurlandi eystra tilkynning um að slys hefði orðið við Framhaldsskólann á Laugum. Þar hefði 19 ára karlmaður orðið fyrir bíl. Þegar viðbragðsaðilar komu á vettvang var maðurinn meðvitundarlaus og báru endurlífgunartilraunir ekki árangur.
Nokkrir nemendur úr skólanum urðu vitni að slysinu og hefur áfallahjálparteymi Rauða krossins verið virkjað til að hlúa að þeim. Rannsókn á tildrögum slyssins er á algjöru frumstigi og vettvangsrannsókn enn yfirstandandi þegar þetta er skráð nú í kvöld.
Lögreglan getur því ekki veitt frekari upplýsingar um málið að svo komnu.
Umræða