Ég var að nálgast 112 kíló, ég gerði voða lítið annað en að sitja fyrir framan tölvuna spilandi tölvuleiki og fleiri hluti sem höfðu áhrif á dópamín flæðið hjá mér.
Þunglyndið var orðið svo slæmt og var lífsviljinn ekki mikill vegna fitu og leti, engin þunglyndislyf hjálpuðu mér.
Ég ákvað þá að prófa eitthvað nýtt, eitthvað sem ég hafði frestað til lengri tíma og fékk ég mér kort hjá World Class.
Ég byrjaði að mæta með því hugarfari að gefast ekki upp enda hafði ég engu að tapa lengur en allt að fá til baka.
Ég lagði leið mína í Vaxtarvörur í Hafnarfirði og fékk þar bestu ráðgjöf sem ég hef fengið varðandi hvað ég þyrfti að taka inn með ræktinni ásamt hinum ýmsu öðrum ráðum.
Bara það eitt að taka inn vítamínin sem þeir mældu með losaði við floaters sem höfðu truflað mig í rúmlegar tvö ár. Kreatín, prótín, pre–workout ásamt testo aukandi gerði mér það kleyft að halda áfram á fullum krafti og sjá árangur.
Það má í raun segja að þessi viðsnúningur í lífi mínu hafi bjargað því litla sem ég átti eftir.
Ég er glaður og brosi í fyrsta skipti í langan tíma, ég vakna ferskari og hef betri tök á að höndla það sem lífið skýtur að manni. Ég er að verða 100 kíló núna og stefni bara á að halda áfram.
Hreyfing, inntaka vítamína og efna sem líkaminn þarf hefur sannað fyrir mér að það hafi töluvert betri áhrif en nokkur þunglyndislyf eða annað sem ég hef tekið inn.