Helstu breytingar á fylgi flokka frá síðustu mælingu eru að fylgi Miðflokksins eykst um rúmlega tvö prósentustig milli mánaða, en 9% segjast myndu kjósa flokkinn ef kosið yrði til Alþingis í dag og fylgi Sósíalistaflokksins minnkar um rösklega eitt prósentustig, en tæplega 4% segjast myndu kjósa flokkinn nú. Fylgi annarra framboða breytist lítið, eða um 0-0,9 prósentustig.
Fjórðungur þeirra sem taka afstöðu segist myndi kjósa Sjálfstæðisflokkinn færu kosningar til Alþingis fram í dag, nær 16% Samfylkinguna, tæplega 12% Vinstri græn og sama hlutfall Pírata. Rúmlega 10% segjast myndu kjósa Viðreisn, 9% Framsóknarflokkinn og tæplega 4% Flokk fólksins. Rúmlega 13% segjast myndu skila auðu eða ekki kjósa ef kosið yrði til Alþingis í dag og tæplega 10% taka ekki afstöðu eða neita að gefa hana upp.
Tæplega 48% þeirra sem taka afstöðu segjast styðja ríkisstjórnina og er það svipað hlutfall og í síðustu mælingu.
Spurt var:
Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk myndir þú kjósa?
En hvaða flokkur yrði líklegast fyrir valinu?
Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?
Styður þú ríkisstjórnina?