• 442.is
  • Veiðin.is
Fréttatíminn.is
Ekkert fannst
View All Result
  • Innskráning
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsendar greinar
  • Afþreying
  • Veiðin.is
Auglýsingar
Hafa samband
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsendar greinar
  • Afþreying
  • Veiðin.is
Ekkert fannst
View All Result
Fréttatíminn.is
Ekkert fannst
View All Result
AUGLÝSING

Páskahugvekja: Kreppan bitnar mest á þeim verst settu

Alls segjast 43% Eflingarkvenna í spurningarkönnuninni eiga erfitt eða frekar erfitt með að ná endum saman

Ritstjórn Fréttatímans eftir Ritstjórn Fréttatímans
2. apríl, 2021
0 0
Páskahugvekja: Kreppan bitnar mest á þeim verst settu

,,Alltof margir reiða sig á hjálparstofnanir til að lifa af í kreppunni”

Dæmigert er í kreppum að lágtekjufólk missi frekar vinnuna en þeir sem betur eru settir. Þannig var það í Kreppunni miklu á fjórða áratug síðustu aldar og einnig í kjölfar hrunsins 2008. Þetta endurtekur sig nú í Kóvid-kreppunni, þegar atvinnuleysið hefur náð áður óþekktum hæðum hér á landi.
Páskahugvekja Eflingar: Kreppan bitnar mest á þeim verst settu

Raunar má segja að þessi 12% vinnuaflsins sem eru atvinnulaus séu sá hluti samfélagsins sem langmest finnur fyrir kreppunni, en stór meirihluti þjóðarinnar finnur frekar lítið fyrir henni, enda halda þau vinnu sinni og fullum launum. Byrðunum er því mjög misskipt.

Félagsmenn Eflingar – stéttarfélags hafa þurft að axla þyngri byrðar en flestir aðrir á vinnumarkaði, að því er fram kemur í niðurstöðum nýlegrar spurningakönnunar Vörðu, rannsóknarstofnunar vinnumarkaðarins.

Eflingarkonur eiga til dæmis mun erfiðara með að ná endum saman heldur en konur í öðrum aðildarfélögum ASÍ og BSRB. Alls segjast 43% Eflingarkvenna í spurningarkönnuninni eiga erfitt eða frekar erfitt með að ná endum saman samanborið við 28% kvenna í öðrum aðildarfélögum samtakanna. Samanlagt á 38% Eflingarfólks (karla og kvenna) í könnuninni erfitt eða frekar erfitt með að ná endum saman en hlutfallið er 25% meðal félaga annarra stéttarfélaga.

Aðeins helmingur Eflingarfélaga býr í eigin húsnæði miðað við þrjá fjórðu félaga annarra aðildarfélaga. Að sama skapi býr tæplega þriðjungur Eflingarfélaga í leiguhúsnæði á almennum markaði en 14% félaga í öðrum aðildarfélögum.

Heilsufar Eflingarfólks er verra en hjá launafólki í öðrum stéttarfélögum innan ASÍ og BSRB, en samt hefur fleira Eflingarfólk neitað sér um heilbrigðisþjónustu af einhverju tagi síðastliðna sex mánuði (54% á móti 34%). Vanskil leigu og lána eru einnig algengari hjá Eflingarfélögum. Niðurstöður könnunarinnar bera þannig flestar að sama brunni.

Af framansögðu er ljóst að verkafólk á Íslandi býr við mun verri kost en félagar í öðrum aðildarfélögum ASÍ og BSRB og alltof margir þeirra reiða sig á hjálparstofnanir til að lifa af í kreppunni. Kreppan hefur þannig magnað þann ójöfnuð sem fyrir var í samfélaginu, með því að hún leggst með meiri þunga á láglaunafólk en aðra.

Í þessu samhengi er leitt til þess að vita að stjórnvöld hafa lítt sinnt því að bæta sérstaklega afkomutryggingu þeirra atvinnulausu, en látið styrki til fyrirtækja ganga fyrir. Í Bandaríkjunum, sem ekki eru þekkt fyrir að reka öflugt velferðarríki, hafa stjórnvöld greitt þeim atvinnulausu ríflegar tímabundnar aukagreiðslur ofan á atvinnuleysisbæturnar til að létta þeim byrðarnar í gegnum kreppuna. Hér hefur ekkert sambærilegt verið gert.

Það er ekki í anda kristinna sjónarmiða um sanngirni og mannúð að láta lítinn minnihluta samfélagsins bera stærstu kreppubyrðarnar þegar þorri þjóðarinnar býr við ágæt kjör og þeir ríkustu hafa jafnvel aukið eignir sínar.

Vonandi rísa stjórnvöld upp eftir páskahelgina og taka til hendinni í þágu þeirra atvinnulausu.

Deila10TweetDeila
Ritstjórn Fréttatímans

Ritstjórn Fréttatímans

Umræða

Auglýsing

Mest lesið í dag

  • Á bráðamótöku með stunguáverka eftir líkamsárás

    0 deilingar
    Deila 0 Tweet 0
  • Brýnt að jafna kynjahlutföll á skipum

    0 deilingar
    Deila 0 Tweet 0
  • Así vill koma í veg fyrir þrælahald og mannsal á íslenskum farskipum

    46 deilingar
    Deila 46 Tweet 0
  • Íslensk útgerðarfyrirtæki eru þurfalingar, ómagar og afætur í íslensku þjóðfélagi

    474 deilingar
    Deila 474 Tweet 0
  • Óréttlæti og valdníðsla

    43 deilingar
    Deila 43 Tweet 0
Fréttatíminn.is

Fréttatíminn er óháður miðill

Fréttatíminn © 2020

Ekkert fannst
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsendar greinar
  • Afþreying
  • Veiðin.is

Fréttatíminn © 2020

Velkomin/n!

Skráðu þig inn hér fyrir neðan

Gleymt lykilorð?

Búa til aðgang!

Fill the forms bellow to register

Það þarf að fylla inn alla reiti. Innskráning

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Innskráning
Are you sure want to unlock this post?
Unlock left : 0
Are you sure want to cancel subscription?