• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Login
Miðvikudagur, 7. júní 2023
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
Frettatiminn
No Result
View All Result

Svört skýrsla um áhrif verðtryggingar fæst ekki birt

ritstjorn by ritstjorn
6. maí 2023
in Aðsent & greinar, Fréttir, Innlent, Viðskipti
0
Ríkið afli tekna og auki velferð
Share on FacebookShare on Twitter

Þingmaður Flokks fólksins vitnaði í svarta skýrslu sem ekki hefur fengist birt, í ræðu sinni á Alþingi í gær. Umrædd skýrsla var skrifuð af Dr. Ólafi Margeirssyni hagfræðingi og Jacky Mallett, lektor við Háskólann í Reykjavík, samkvæmt beiðni tólf þingmanna úr fimm flokkum. Þau skiluðu skýrslunni til félagsmálaráðuneytisins í júní í fyrra en hún hefur ekki enn fengist birt, þrátt fyrir ítrekaða eftirgrennslan Hagsmunasamtaka heimilanna.

Þingmanninn Ásthildi Lóu Þórsdóttur, sem einnig er formaður Hagsmunasamtaka heimilanna, þraut þolinmæðin í gær og ákvað hún að kunngjöra tilvist skýrslunnar og vitna í kafla hennar um áhrif verðtryggingarinnar á heimilin og hagkerfið.

Samkvæmt því sem Ásthildur Lóa sagði í ræðu sinni er ljóst að skýrslan er óþægileg fyrir stjórnvöld sem hafa varið verðtryggingu á lánum heimilanna með kjafti og klóm, þrátt fyrir loforð um annað. 

Einnig mælti þingmaðurinn fyrir rétti neytenda til að breyta úr verðtryggðum lánum í óverðtryggð en í þeirri ræðu komu fram sláandi niðurstöður sem sýna svart á hvítu hve mikil áhrif 3,4% hækkun verðbólgu frá ársbyrjun hefur haft á verðtryggð lán.

Almenningur á rétt á að sjá þessa skýrslu, ekki síst þegar litið er til þess hvernig fjármála- og efnahagsráðherra hefur ítrekað vísað til verðtryggðra lána sem „lausnar“ fyrir lántakendur sem ekki ráða við gríðarlegar vaxtahækkanir undanfarinna mánaða.

Þau eru ekki lausn, heldur gildra!

Hagsmunasamtök heimilanna

  • ,,Ykkar verður minnst sem vesalinga sem nenntuð ekki eða þorðuð ekki“

    ,,Ykkar verður minnst sem vesalinga sem nenntuð ekki eða þorðuð ekki“

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • Líkfundurinn við Borgarnes

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • ,,Þess vegna sit ég hér og bölva“

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • Vann 78 milljónir í Lottóinu

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • Ragnar Þór boðar til mótmæla – ,,Rísum upp gegn óréttlætinu!“

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
ADVERTISEMENT

Fréttatíminn © 2023

No Result
View All Result
  • Home
  • Landing Page
  • Buy JNews
  • Support Forum
  • Contact Us

Fréttatíminn © 2023

Welcome Back!

Login to your account below

Forgotten Password?

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Log In
Are you sure want to unlock this post?
Unlock left : 0
Are you sure want to cancel subscription?