• 442.is
  • Veiðin.is
Ekkert fannst
View All Result
Fréttatíminn.is
  • Innskráning
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsendar greinar
  • Afþreying
  • Veiðin.is
Auglýsingar
Hafa samband
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsendar greinar
  • Afþreying
  • Veiðin.is
Ekkert fannst
View All Result
Fréttatíminn.is
Ekkert fannst
View All Result
AUGLÝSING

9 ára barn varð undir bifreið – Ökumaður bifhjóls slasaðist við framúrakstur í lausamöl

Verkefni lögreglunnar á Selfossi

Ritstjórn Fréttatímans eftir Ritstjórn Fréttatímans
2. maí, 2022
0 0

AUGLÝSING
Ökumaður bifhjóls slasaðist þegar hann missti stjórn á hjóli sínu við framúrakstur í lausamöl á Grafningsvegi efri þann 25. apríl s.l. Að líkindum brotinn á fingrum og fluttur til aðhlynningar á sjúkrahús. Þennan sama dag fótbrotnaði drengur þegar árekstur varð með bifreið og vespu sem hann ók við hringtorg Fossheiði / Tryggvagata á Selfossi. Hann fluttur sömuleiðis til aðhlynningar á sjúkrahúsi. 

Að kvöldi 30. apríl var þyrla LHG kölluð til þegar 9 ára barn varð undir bifreið á vegi í Brekkuskógi í uppsveitum Árnessýslu. barnið með áverka á öxl og brjóstkassa og flutt til aðhlynningar á sjúkrahús. Öll þessi slys eru í rannsókn áfram.

Ferðamaður á leið sinni upp Reykjadal í Ölfusi þann 29. apríl s.l. slasaðist á fæti þegar hann steig ofan í leir við hver í Rjúpnabrekkum fremst í dalnum. Sökk þar í leir og er brunninn á fæti upp á ökla. Hann fluttur með til aðhlynningar á sjúkrahús.

Þann 28. apríl slasaðist maður þegar hann féll af vinnupalli við malarhörpu í Þorlákshöfn. Fallið 3 til 4 metrar og hann alvarlega slasaður eftir. Fluttur á sjúkrahús til aðhlynningar og vinnueftirlit kallað til frekari rannsóknar á vettvangi. Handrið á vinnupallinum virðist hafa gefið sig með þessum afleiðingum. Deginum áður hafði karlmaður fallið úr um 3. m hæð úr stiga við vinnu sína í nýbyggingu, einnig í Þorlákshöfn. Hann með áverka á höfði og fluttur á sjúkrahús. Vinnueftirliti gert viðvart um slysið.

38 ökumenn voru kærðir fyrir að aka of hratt í liðinni viku á Suðurlandi. Hraði eins þeirra mældist 150 km/klst á Suðurlandsvegi í Flóa. Sektin þar 210 þúsund auk sviptingar ökuréttar í 1 mánuð. Af þessum 38 voru 24 í Árnes og Rangárvallasýslum Þá féllu 7 hraðamælingar til hjá lögreglumönnum við eftirlit með stórum bílum víðsvegar um Suður- og Suðvesturlandið svona meðan beðið var eftir næsta bíl til að skoða leyfi og annað hjá. Þá vou 5 þessara í Sveitarfélaginu Hornafirði. Allir sitja eftir með óþarfa kostnað og það að hafa valdið samferðamönnum sínum og sjálfum sér óþarfa hættu í umferðinni.

Ökumaður fólksbifreiðar við Landvegamót var sektaður þar sem barn í bílnum var án öryggisbúnaðar. Viðeigandi barnavernd einnig gert viðvart um málið.

Eldur kom upp í þvottavél í íþróttamiðstöðinni á Hellu þann 27. apríl. Starfsmenn brugðust snarlega við og slökktu með slökkvitæki og færðu vélina út fyrir hús. Tjón minniháttar en þó reykur um hluta hússins. Þá var tilkynnt um eld um borð í björgunarskipinu Ingibjörgu þar sem það lá bundið við bryggju í Hornafjarðarhöfn þann 25. apríl s.l. Við athugun reyndist um bilun í sjálfvirkum slökkvibúnaði í vélarrúmi að ræða og aðstoð því afturkölluð.

DeilaTweetDeila

Ritstjórn Fréttatímans

Ritstjórn Fréttatímans

Umræða

https://hysa.is https://hysa.is https://hysa.is
AUGLÝSING

Mest lesið í dag

  • Ný gögn sýna glögglega að ris er að eiga sér stað

    Ný gögn sýna glögglega að ris er að eiga sér stað

    0 deilingar
    Deila 0 Tweet 0
  • ,,Sérstakur staður í helvíti fyrir fólk sem selur sál sína fyrir völd og vegtyllur”

    0 deilingar
    Deila 0 Tweet 0
  • Yfir 4000 jarðskjálftar – Stærstu voru 4,3 og 4,2

    0 deilingar
    Deila 0 Tweet 0
  • Stóraukin umsvif Icelandair

    0 deilingar
    Deila 0 Tweet 0
  • Fimm sitja í gæsluvarðhaldi eftir aðgerðir Lögreglu

    0 deilingar
    Deila 0 Tweet 0
Fréttatíminn.is

Fréttatíminn er óháður miðill

Fréttatíminn © 2020

Ekkert fannst
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsendar greinar
  • Afþreying
  • Veiðin.is

Fréttatíminn © 2020

Velkomin/n!

Skráðu þig inn hér fyrir neðan

Gleymt lykilorð?

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Innskráning
Are you sure want to unlock this post?
Unlock left : 0
Are you sure want to cancel subscription?