Ljóst er að Íslendingar munu ferðast meira um landið í sumar en þeir hafa gert áður vegna ferðatakmarkana og í ljósi kórónaveirufaraaldsins. Björn Kristjánsson segir mikilvægt að ökumenn séu meðvitaðir um að akstur með þungan eftirvagn krefst þjálfunar og færni.
Björn segir ennfremur að hjólhýsi eru misþung en algengt er að þau séu á bilinu 1.000 til 1.500 kíló. Sum hver eru allt að 2.000 kíló. Í skráningarskírteinum bíla er gefið upp hvað þeir mega draga mikla þyngd. Ef farið er yfir uppgefna þyngd getur það skemmt sjálfskiptingu, drifbúnað, mótor og bremsubúnað ökutækja auk þess sem öryggi er ógnað. Björn segir að allir ökumenn þurfi að yfirfara vagnana reglulega og ganga úr skugga um að öryggisbúnaður og lestun sé í lagi.
Hann leggur áherslu á að ökumenn sem ekki hafa reynslu af því að draga hjólhýsi kynni sér hvernig bera eigi sig að og verða sér út um tilskilin leyfi og réttindi. Þá sé lykilatriði að gefa sér góðan tíma og fara varlega á ferðalagi um landið.
Viðtalið við Björn má nálgast hér.