• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Þriðjudagur, 24. febrúar 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Stjórnvöld krafin um viðbrögð vegna ofurhækkunar á bílaeldsneyti

Rekstur fjölskyldubílsins er næst útgjaldafrekasti liðurinn í rekstri íslenskra heimila

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
2. júní 2022
in Fréttir, Innlent
A A
0

Kostnaðarverð bensínlítra á heimsmarkaði fór í dag yfir 150 íslenskar krónur. Við upphaf innrásar Rússa í Úkraínu 24. febrúar sl. var verð á lítra af bensíni á heimsmarkaði undir 100 krónum. Dísillítri kostaði þá ríflega 101 krónu en er um þessar mundir í ríflega 144 krónum. Ef farið er ár aftur í tímann og verðin könnuð 1. júní 2021 þá var bensínlítrinn í tæplega 70 krónum og dísillítrinn í 69 krónum.

Bensínlítri á markaði hefur hækkað í verði til íslenskra neytenda um 50% frá upphafi innrásarinnar í febrúar og um 114% samanborið við verðið fyrir einu ári síðan. Hækkun dísillítrans hefur verið svipuð.

Þrátt fyrir þessar miklu hækkanir sem stýrast af heimsástandi og ólgu á erlendum mörkuðum þá hafa íslensk stjórnvöld ekki gert neitt til að stemma stigum við þessum gríðarlegu hækkunum á eldsneyti til neytenda. Víða í Evrópu hafa stjórnvöld komið með inngrip og aðgerðir til þess að draga úr áhrifum þessara miklu heimsmarkaðshækkana á afkomu heimila og fyrirtækja. Meðal aðgerða í má nefna lækkun eldsneytisskatta, lækkun virðisaukaskatts á bílaeldsneyti, verðþak á bensín- og dísilverð og skattafrádrátt vegna eldsneytis í rekstri ökutækja.  Til aðgerða hefur m.a. verið gripið í Svíþjóð, Finnlandi , Þýskalandi, Póllandi, Belgíu, Ungverjalandi.

Hvað er að frétta hér heima? Formlegu erindi FÍB til stjórnvalda um það að koma til móts við neytendur á þessum óeðlilegu tímum með a.m.k. tímabundinni lækkun eldsneytisgjalda hefur ekki verið svarað nema með neikvæðum ummælum í fjölmiðlum.

Katrín Jakpbsdóttir forsetisráðherra

Það er sjálfsögð krafa að ríkisstjórnin grípi til aðgerða og móti stefnu til að draga úr neikvæðum áhrifum fordæmalausra verðhækkana á heimilin í landinu! Rekstur fjölskyldubílsins er næst útgjaldafrekasti liðurinn í rekstri íslenskra heimila og hækkun eldsneytis hefur haft verulega útgjaldaaukningu í för með sér.

Verst bitnar þetta ástand á íbúum í dreifbýli sem þurfa sækja þjónustu um langan veg. Hækkunin hefur einnig umtalsverð áhrif á vísitölu neysluverðs sem kyndir hressilega verðbólgubálið sem kemur sér illa við svo til alla.

Mynd: Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra

https://gamli.frettatiminn.is/27/04/2022/rafmagnsreikningurinn-verdur-yfir-100-000-a-manudi-a-islandi/

https://gamli.frettatiminn.is/02/11/2019/noregur-missti-vold-sin-yfir-raforku-landsins-til-acer-i-dag/

Umræða
Share1Tweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Viðvörun um eldgos á Tenerife

    Óttast eldgos á Tenerife

    154 deilingar
    Share 62 Tweet 39
  • Sturluð staðreynd

    42 deilingar
    Share 17 Tweet 11
  • Ekkert gagnsæi vegna sölu á sjávarafurðum – Gríðarlegur mismunur á verði

    19 deilingar
    Share 8 Tweet 5
  • Mikilvægar upplýsingar um berkla og berklasmit

    5 deilingar
    Share 2 Tweet 1
  • Silja Bára rektor fær á sig vantrauststillögu

    3 deilingar
    Share 1 Tweet 1
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?