Í samtali við Guðlaug Hermannsson, fiskútflytjanda kemur fram að skattalög vegna hlunninda hafa verið brotin í tugi ára upp á hundruði milljarða af hálfu opinberra aðila og ríkisstjórna sem hafa ekki tekið á málinu. Guðlaugur Hermannsson oddviti Frjálslynda lýðræðisflokksins hefur reynt um árabil að fá ríkisskattstjóra og skattrannsóknarstjóra til að taka á þessum málum og hefur m.a. skrifað þeim bréf, m.a.s. opin bréf en þeim hefur ekki einu sinni verið svarað.
,,Þetta er grafalvarlegt mál og það er verið að brjóta á öllu samfélaginu með því að skattleggja ekki hlunnindi eins og fiskveiðikvótinn er. Útgerðarmenn fá inn um bréfalúguna hjá sér úthlutaða sameiginlega auðlind þjóðarinnar, þann 1. september á hverju ári og borga ekki krónu fyrir hlunnindin í skatt.
En ef t.d. maður af götunni fær gefins veiðileyfi í veiðiá, upp á t.d. 40.000 krónur þá verður sá hinn sami að greiða skatt fyrir slík hlunnindi. Ef tekið væri á aðeins þessu eina atriði, þá væri hægt að afnema allar skerðingar á eldri borgara og öryrkja, bara með einu pennastriki, en það er enginn vilji hjá fjórflokknum til þess.
Brotalamir í kerfinu hvað þetta mál varðar og mörg fleiri er ástæðan fyrir því að ég býð mig fram til Alþingis og ég treysti Frjálslynda lýðræðisflokknum lang best til þess að vinna heiðarlega fyrir fólkið í landinu gegn spillingu og óréttlæti og ef hinir flokkarnir hefðu haft einhvern áhuga á því, þá væru þeir búnir að taka á spillingunni og sérhagsmunagæslu fyrir fáa útvalda, fyrir löngu síðan.“ – Hér að neðan má hlusta á allt viðtalið: