Ekki hægt að treysta á umsagnir á netinu
Neytendasamtökin vekja athygli neytenda á því að ekki sé hægt að treysta á umsagnir á netinu og á þá við einkunnargjöf vegna kaupa á netinu:
Amazon trónir á toppnum sem stærsta netverslun í heimi og hefur gert um árabil. Viðskiptavinir fyrirtækisins hafa eflaust tekið eftir því að söluvarningi fylgir gjarnan einkunnargjöf notenda, í formi bæði stjörnugjafar og umsagna í rituðu máli. Bresku neytendasamtökin Which? hafa afhjúpað umfangsmikið svindl varðandi jákvæðar umsagnir um kaup og sölu á netinu.
Fyrirtæki sem sérhæfa sig í sölu á jákvæðum umsögnum
Þrátt fyrir aðgerðir af hálfu Amazon til að koma í veg fyrir falsumsagnir sýna rannsóknir Which? að seljendur sem eru með varning sinn til sölu á Amazon geta haft áhrif á umsagnakerfið eftir ýmsum leiðum. Which? fann þannig fjölmörg fyrirtæki sem sérhæfa sig í sölu á jákvæðum umsögnum. Þar á meðal er þýska fyrirtækið AMZTigers, sem hefur á sínum snærum 62.000 kaupmælendur (e. reviewers) víðsvegar um heiminn, þar af 20.000 í Bretlandi.
Falsumsagnir á netinu
Seljendur beita margir hverjir ýmsum brögðum til að auka sinn hlut og rétt fyrir neytendur að vera á varðbergi. Í nýjasta tölublaði Neytendablaðsins má finna ítarlega umfjöllun um falsumsagnir á netinu. Ekki félagi í Neytendasamtökunum? það er lítið mál að bæta úr því, skráðu þig hér