Hugleiðingar veðurfræðings á Veðurstofu
Nú eru lægðir við suðurhluta Grænlands og hæð yfir Írlandi. Saman beina þessi veðurkerfi til okkar hlýju og röku lofti langt sunnan úr höfum.
Í dag er útlit fyrir sunnan strekking eða allhvassan vind, en í kvöld og nótt má búast við hvassviðri eða stormi í vindstrengjum á norðanverðu landinu. Horfur eru á rigningu eða súld, en þurrir kaflar á Norður- og Austurlandi. Eins og áður sagði er loftið yfir landinu hlýtt og gæti hiti náð yfir 15 stig í hnjúkaþey um landið norðanvert.
Á morgun gera spár ráð fyrir að kröpp smálægð fari yfir landið frá norðri til suðurs. Vindáttin verður lengst af suðlæg og mjög vætusamt. Undir kvöld snýst vindur til vestlægrar áttar á vestanverðu landinu og þar kólnar og slyddukennd úrkoma lætur á sér kræla ef að líkum lætur.
Spá gerð: 02.12.2019 06:35. Gildir til: 03.12.2019 00:00.
Veðurhorfur á landinu
Gengur í sunnan 10-18 m/s eftir hádegi, en hvassara í vindstrengjum norðanlands í kvöld og nótt. Víða rigning, en úrkomulítið norðaustantil á landinu. Hiti 7 til 16 stig síðdegis, hlýjast fyrir norðan.
Áfram stíf suðlæg átt á morgun og rigning með köflum, talsverð úrkoma sunnantil á landinu eftir hádegi. Vestlægari undir kvöld á vestanverðu landinu með slyddu og kólnar.
Spá gerð: 02.12.2019 05:44. Gildir til: 03.12.2019 00:00.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á þriðjudag:
Suðlæg átt 10-18 m/s og rigning með köflum, talsverð úrkoma sunnantil á landinu síðdegis. Hiti 4 til 12 stig, hlýjast á Austurlandi. Vestlægari um kvöldið á vestanverðu landinu með éljum og kólnar.
Á miðvikudag:
Suðvestan 8-15 með éljagangi, en bjartviðri norðaustantil. Kólnandi, frost 0 til 5 stig seinnipartinn.
Á fimmtudag og föstudag:
Norðlæg átt með snjókomu eða éljum norðanlands, en yfirleitt þurrt og bjart syðra. Frost 1 til 10 stig.
Á laugardag:
Austlæg átt með dálitlum éljum norðanlands, snjókomu eða slyddu syðst á landinu, en þurrt að kalla á Vesturlandi. Frost 0 til 5 stig.
Á sunnudag:
Útlit fyrir norðaustanátt með dálítilli snjókomu eða slyddu norðan- og austanlands, en bjartviðri sunnan heiða. Hiti kringum frostmark.
Spá gerð: 01.12.2019 21:39. Gildir til: 08.12.2019 12:00.
Hefur þú áhuga á að hjálpa Fréttatímanum að vaxa og dafna?
Með því að styrkja Fréttatímann stuðlar þú að frjálsri og óháðri umfjöllun.