Ég, Hólmfríður Árnadóttir, skólastjóri Sandgerðisskóla hef ákveðið að bjóða mig fram til að leiða lista VG í Suðurkjördæmi í næstu Alþingiskosningum. Helstu baráttumál mín eru velferð barna og fjölskyldna á öllum tímum.
Ég er menntunarfræðingur og þekki málefni barna og ungmenna vel af eigin raun í gegnum fjölbreytt störf. Ég hef verið virk í VG undanfarin ár og er formaður svæðisfélags Vinstri grænna á Suðurnesjum. Í gegnum störf mín í stjórnmálum tel ég skipta miklu máli að áherslur VG fái stóraukið vægi í því fjölbreytta, gjöfula umhverfi og náttúru sem Suðurlandið er.
Þá skiptir miklu að íbúi af fjölmennasta og fjölbreyttasta svæði kjördæmisins leiði listann með jafnrétti, jöfnuð, lýðræði, sjálfbærni, fjölmenningu og réttlæti að leiðarljósi. Hér á Suðurnesjum þurfum við að leggja ríka áherslu á að efla heilbrigðisþjónustu við íbúa. Þá þarf einnig að horfa til fjölbreyttari atvinnumöguleika og samfélags þar sem vel er stutt við fjölmenningu og menntun í öllu kjördæminu með umhverfi, mannlíf og verndun náttúrunnar efst í huga.