• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Sunnudagur, 18. maí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Norðan stormur og enn hvassara í vindstrengjum

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
2. desember 2020
in Fréttir, Innlent
A A
0

 

Hugleiðingar veðurfræðings
Í dag er útlit fyrir vaxandi norðanátt, víða hvassviðri eða stormur eftir hádegi og jafnvel enn hvassara í vindstrengjum sunnan Vatnajökuls undir kvöld. Búist er við snjókomu á norðurhelmingi landsins, sums staðar talsverð ofankoma á Norðurlandi. Sunnan heiða verður lítil úrkoma, en þó sums staðar lítilsháttar él á þeim slóðum. Það kólnar í veðri og frystir á landinu í dag.

Á morgun er ekkert nema norðan stormur í kortunum og enn hvassara í vindstrengjum sunnan undir fjöllum og þá einkum á suðaustanverðu landinu. Það verður snjókoma eða él norðan- og austanlands. Áfram líkur á dálitlum éljum sunnantil á landinu. Það herðir á frostinu þegar ískalt heimskautaloft streymir yfir okkur úr norðri. Í dag, á morgun og fram á föstudag er semsagt útlit fyrir fyrsta alvöru norðanáhlaup vetrarins. Á Norður- og Austurlandi verður vindstyrkur og snjókomumagn væntanlega nægilegt til að tala megi um stórhríð, að minnsta kosti á einhverjum köflum í tíma.

Ekki er gert ráð fyrir að vind lægi að gagni fyrr en síðdegis á föstudag, þá fyrst vestast á landinu. Þá styttir einnig upp fyrir norðan og austan. Eins og oft vill verða þegar lægir og léttir til eftir kalda norðanátt, þá hækkar frosttölur á hitamælum og horfur eru á hægum vindi um helgina með hörkufrosti.

Gul viðvörun  vegna veðurs: Suðurland, Faxaflói, Breiðafjörður, Vestfirðir, Strandir og norðurland vestra, Norðurland eystra, Austurland að Glettingi, Austfirðir, Suðausturland og Miðhálendi  

Veðurhorfur á landinu
Vaxandi norðanátt í dag, víða 15-23 m/s eftir hádegi og hvassara í vindstrengjum sunnan Vatnajökuls undir kvöld. Snjókoma á norðurhelmingi landsins, sums staðar talsverð ofankoma á Norðurlandi, en úrkomulítið sunnan heiða. Frost 0 til 6 stig.

Norðan 18-25 m/s á morgun, en 23-28 í vindstrengjum á suðaustanverðu landinu. Snjókoma eða él norðan- og austanlands. Úrkomulaust að mestu sunnan heiða, en þó sums staðar lítilsháttar él á þeim slóðum. Frost 2 til 8 stig. Spá gerð: 02.12.2020 05:55. Gildir til: 03.12.2020 00:00.

Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á fimmtudag:
Norðan 18-25 m/s, en 23-28 í vindstrengjum á suðaustanverðu landinu. Snjókoma eða él norðan- og austanlands. Sums staðar dálítil él sunnan heiða. Frost 2 til 8 stig.

Á föstudag:
Norðan 13-20, en hvassara suðaustantil. Él á Norður- og Austurlandi, en bjartviðri sunnan- og vestanlands. Lægir og styttir upp seinnipartinn, fyrst vestast á landinu. Herðir á frosti.

Á laugardag og sunnudag:
Hæg suðvestlæg eða breytileg átt. Víða bjartviðri, en stöku él syðst á landinu og einnig á Vestfjörðum. Frost 5 til 18 stig.

Á mánudag og þriðjudag:
Líkur hægum vindi áfram. Bjart í veðri, en él á stöku stað við ströndina. Áfram kalt.
Spá gerð: 01.12.2020 21:19. Gildir til: 08.12.2020 12:00.

 

Umræða
Share4Tweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Kvörtuðu yfir meintum ólöglegum símhlerunum – Fengu margra ára fangelsisdóma fyrir glæpi

    Kvörtuðu yfir meintum ólöglegum símhlerunum – Fengu margra ára fangelsisdóma fyrir glæpi

    89 deilingar
    Share 36 Tweet 22
  • Leigja frá sér á 500.000 kr. en greiða sjálfir 26.000 kr.

    19 deilingar
    Share 8 Tweet 5
  • Fíkniefnasali hlær að bönkunum og lánar á betri kjörum

    185 deilingar
    Share 74 Tweet 46
  • Íslendingar í Panama-skjölunum – Aflandsfélög í skattaskjólum?

    132 deilingar
    Share 53 Tweet 33
  • Innflytjendur kosta hundrað milljarða á ári – Opin landamæri Schengen

    6 deilingar
    Share 2 Tweet 2
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?