Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness, gagnrýnir þá fullyrðingu Bjarna Benediktssonar í Kryddsíldinni á gamlársdag, er hann hélt því fram að 1% fullvinnandi verkafólks á landsvísu ynni á lágmarkslaunum
,,Í gögnum frá Hagstofu Íslands kemur fram að yfir 50% verkafólks voru með laun undir 300.000 í dagvinnu í september 2018.
En rétt er að geta þess að fjármálaráðherra hélt því fram í Kryddsíld Stöðvar 2 á gamlársdag að 1% á íslenskum vinnumarkaði vinni á lágmarkslaunun. Það er alrangt hjá fjármálaráðherra. Um helmingur fullvinnandi verkafólks á landsvísu er á lágmarkslaunum.
Þetta eru því miður blákaldar staðreyndir og við hljótum sem samfélag að vera sammála því að lagfæra þurfi ráðstöfunartekjur verkafólks þannig að laun þeirra dugi fyrir lágmarks framfærsluviðmiðum sem Velferðaráðneytið hefur gefið út.“ Segir Vilhjálmur Bjarnason, formaður Verkalýðsfélags Akraness.
Á vef velferðarráðuneytisins má nálgast reiknivél þar sem hægt að reikna út tvenns konar neysluviðmið fyrir íslensk heimili. Eftir að notandi hefur sett inn upplýsingar um fjölskyldustærð og búsetu reiknar vélin viðmiðunarútgjöld. Einnig geta notendur fært inn raunkostnað fyrir einstaka útgjaldaliði og þannig nýtt reiknivélina til að smíða útgjaldaáætlun fyrir eigið heimili. Húsnæðiskostnaður er ekki inni í viðmiðinu.
Tengt efni:
https://www.fti.is/2018/12/26/2018-mesta-godaerisar-a-islandi-og-enn-bjartara-framundan/