• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Miðvikudagur, 4. mars 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Eldur kom upp í vindmyllu

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
3. janúar 2022
in Fréttir, Innlent
A A
0
Almennt fór helgihald um áramótin vel fram að sögn lögreglunnar á Suðurlandi, ,,en þó voru fjölmargir sinubrunar skráðir í liðinni viku, flestir á Nýársnótt þegar eldur frá brennum annarsvegar og flugeldum hins vegar náði í sinu og í einhverjum tilvikum varð af mikill eldur. Tjón mun ekki hafa orðið mikið en umtalsverður kostnaður við björgunarstörf sem vörðu meira og minna frá því á gamlárskvöld og fram undir hádegi á þann 1. janúar.

Hjálpuðust þar að slökkvilið, björgunarsveitir og lögregla ásamt nærstöddum einstaklingum sem í mörgum tilvikum bruggðust skjótt við og komu í veg fyrir að verulegt tjón yrði. Varað hafði verið við hættu á gróðureldum fyrir áramótin með auglýsingum í vefmiðlum og eins voru send út SMS skeyti til viðvörunar en það virðist ekki hafa dugað til þess að nægilegrar varkárni væri gætti í öllum tilfellum

Eldur kom upp í vindmyllu í Þykkvabæ þann 1. janúar í miklu óveðri sem gekk yfir þann dag. Vindmyllan var ekki í framleiðslu rafmagns og hefur staðið um nokkurt skeið í bremsu. Vindálag virðist hinsvegar hafa orðið svo mikið að hún náði að snúast og við núning hemla hennar orðið það mikill hiti að eldur kviknaði. Vélbúnaður allur mun vera í toppi mastursins og því líklegt að hann sé ónýtur. Í ljósi hæðar mastursins og veðurs var ekki reynt að slökkva eldinn heldur tryggt að logandi hlutir sem féllu til jarðar yllu ekki tjóni á öðru í umhverfi myllunnar. Í mastri myllunnar voru sendar fyrir gsm og mun eitthvað tjón hafa orðið á þeim.

24 ökumenn voru í liðinni viku kærðir fyrir að aka of hratt. Flestir þeirra ferðamenn á leið sinni um landið. Lögreglumenn í Vík og á Kirkjubæjarklaustri settu upp umferðarpóst aðfaranótt 1. janúar og leiddi það til þess að einn ökumaður var stöðvaður grunaður um að vera bæði ölvaður og undir áhrifum kannabisefna. Hann framvísaði jafnframt kannabisefnum sem hann hafði meðferðis til eigin nota að sögn. Annar ölvaður ökumaður var stöðvaður sömu nótt á Selfossi. Sá er erlendur ferðamaður að njóta áramótanna á ferðalagi sínu. Þriðji einstaklingurinn hafði verið stöðvaður á Selfossi þann 27. desember grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna. Hann og farþegi hans framvísuðu báðir efnum sem þeir kváðu ætluð til eigin neyslu.

Sjö umferðarslys voru tilkynnt til lögreglu í liðinni viku og meiðsl sem teljast minniháttar skráð í fjórum þeirra.“

Umræða
Share1Tweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Skrifaði bréf til foreldranna og sagðist vilja deyja í friði

    Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair og krefjast ómerkingar

    90 deilingar
    Share 36 Tweet 23
  • Skrifaði bréf til foreldranna og sagðist vilja deyja í friði

    45 deilingar
    Share 18 Tweet 11
  • Hægt verði að reka starfsmann án áminningar

    15 deilingar
    Share 6 Tweet 4
  • Trúa á konum en ekki körlum – Sjálfsvíg karla

    20 deilingar
    Share 8 Tweet 5
  • Salmonella í fæðubótarefni

    12 deilingar
    Share 5 Tweet 3
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?