• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Login
Laugardagur, 30. september 2023
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
Frettatiminn
No Result
View All Result

,,Taka þarf á vaxtaofbeldi gagnvart íslendingum!''

ritstjorn by ritstjorn
3. mars 2019
in Fréttir, Innlent
0
Share on FacebookShare on Twitter

,,Klárlega eitt brýnasta verkefni verkalýðshreyfingarinnar að taka á þessum vaxtaofbeldi!“ – ,,Íslensk heimili þurfa að greiða í hverjum mánuði 112.500 kr. meira en heimili í Færeyjum“

Vilhjálmur Birgisson, hefur farið yfir vaxtakostnað á Íslandi í samanburði við önnur lönd og hér að neðan er niðurstaða hans af þeirri könnun. Vilhjálmur hefur ítrekað bent á hversu slæm verðtryggingin er fyrir íslensk heimili og fyrirtæki en verðtrygginging er hvergi til í heiminum nema á Íslandi. Hér bendir hann einnig á að íslensk óverðtryggð lán séu fjarri því að vera sanngjörn m.v. það sem að gerist í öðrum löndum.
,, Hérna sést það vaxtaokur sem íslenskum heimilum er gert að greiða hér á land miðað við þau lönd sem við viljum bera okkur saman við. En hér er samanburður á óverðtryggðum húsnæðislánum milli nokkra landa miðað við 25 milljóna húsnæðislán.

,, Íslensk heimili þurfa að greiða tæpum 110 þúsundum króna meira í vaxtakostnað í hverjum mánuði en finnsk heimili.
Íslensk heimili þurfa að greiða tæpum 98 þúsundum króna meira í vaxtakostnað í hverjum mánuði en ítölsk heimili.
Íslensk heimili þurfa að greiða tæpum 98 þúsundum króna meira í vaxtakostnað í hverjum mánuði en austurríks heimili.
Íslensk heimili þurfa að greiða tæpum 96 þúsundum króna meira í vaxtakostnað í hverjum mánuði en heimili á Spáni.
Íslensk heimili þurfa að greiða 90 þúsundum króna meira í vaxtakostnað í hverjum mánuði en heimili í Svíþjóð.
Íslensk heimili þurfa að greiða 85 þúsundum króna meira í vaxtakostnað í hverjum mánuði en heimili í Þýskalandi.
Íslensk heimili þurfa að greiða tæpum 83 þúsundum króna meira í vaxtakostnað í hverjum mánuði en heimili á Bretlandi.
Íslensk heimili þurfa að greiða 83 þúsundum króna meira í vaxtakostnað í hverjum mánuði en heimili í Danmörku.
Íslensk heimili þurfa að greiða 79 þúsundum króna meira í vaxtakostnað í hverjum mánuði en norsk heimili.
Klárlega eitt brýnasta verkefni verkalýðshreyfingarinnar að taka á þessum vaxtaofbeldi!

Í samanburði á breytilegum óverðtryggðum húsnæðisvöxtum á milli nokkra landa sem við erum oft að bera okkur saman við. Kom skýrt fram að íslensk heimili eru að greiða allt að 110.000 kr. meira í vaxtakostnað í hverjum mánuði.
Ólafur Ísleifsson doktor í hagfræði og alþingismaður benti á í umræðum um þetta háa vaxtastig hér á landi að í Færeyjum sé verið núna að bjóða heimilum þar upp á fasta húsnæðisvexti sem hljóða upp á einungis 1,7% til 20 ára.
Ég skoðaði því hvað óverðtryggðir fastir vextir viðskiptabankanna hér á Íslandi hljóða upp á en þeir eru 7,1% miðað við að lánshlutfall sé 80%. Rétt að geta þess að þessir óverðtryggðu vextir bankanna hér á landi eru bara bundnir að hámarki til 5 ára.
Þetta þýðir að íslensk heimili þurfa að greiða 112.500 kr. meira í húsnæðisvexti en heimili í Færeyjum! Að hugsa sér að íslensk heimili þurfi að greiða í hverjum mánuði 112.500 kr. meira en heimili í Færeyjum er gjörsamlega galið og sýnir það ofbeldi sem íslenskum heimilum er boðið upp á ár eftir ár.“ Sagði Vilhjálmur Birgisson s.l. haust.

  • Ung kona fannst látin við smábátahöfnina

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • ,,Spilling? Nei, nei, þetta er Ísland“

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • 84 milljónir eða 215 milljónir – ,,Ekkert annað en opinber glæpastarfsemi“

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • Lægð suður af Reykjanesi – Gul viðvörun vegna veðurs

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • Krýsu­vík­ur­vegur lokaður vegna um­ferðaró­happs

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
ADVERTISEMENT

Fréttatíminn © 2023

No Result
View All Result
  • Home
  • Landing Page
  • Buy JNews
  • Support Forum
  • Contact Us

Fréttatíminn © 2023

Welcome Back!

Login to your account below

Forgotten Password?

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Log In
Are you sure want to unlock this post?
Unlock left : 0
Are you sure want to cancel subscription?