• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Þriðjudagur, 17. febrúar 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Þakkar lífvörðum sínum fyrir að vera á lífi

Telur víst að eitrað hafi verið fyrir sér á hóteli í Suður-Afríku - safnað fyrir læknismeðferð fyrir Jóhannes Stefánsson

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
3. mars 2021
in Erlent, Fréttir, Innlent
A A
0

 

Komið hefur verið á fót GoFundMe síðu þar sem safnað er styrkjum fyrir læknismeðferð fyrir Jóhannes Stefánsson, fyrrverandi framkvæmdastjóra Samherja í Namibíu og verður féið notað til að fjármagna læknismeðferð vegna veikinda sem hann hefur átt við að stríða undanfarin ár.

Jóhannes hætti störfum hjá Samherja árið 2016 í Namibíu og segir að í framhaldinu hafi hann flutt til Suður-Afríku þar sem hann hafði lífverði sem gætt hefðu öryggis hans allan sólarhringinn. Hann telur víst að eitrað hafi verið fyrir sér á hóteli í Suður-Afríku. Markmiðið hafi verið að ráða honum bana.

,,Frá júlí árið 2016 til 10. janúar 2017 dvaldi Jóhannes Stefánsson í felum í Suður-Afríku. Hann réði lífverði vegna þess að hótanir gegn honum fóru vaxandi vegna þekkingar hans á djúpri og víðtækri spillingu. Leyniþjónusta Namibíu og suður-afríska mafían virtust standa á bak við hótanirnar og röð brottnáms tilrauna á honum. Á einum tímapunkti stóðu fimm menn vopnaðir frammi fyrir lífvörðum Jóhannesar Stefánssonar. Þá var einnig reynt að múta lífvörðum hans og fjölskyldumeðlimum þeirra var ógnað.

Stuttu eftir að hann skrifaði undir starfslokasamning við Samherja telur Jóhannes að fyrst hafi verið eitrað fyrir sér, á hóteli í Suður-Afríku. Hann telur eindregið að Samherji hafi vitað af þessari fyrstu eitrun og síðari tilraunum. Jóhannes Stefánsson varð fyrir eitrunaráhrifum sem lýstu sér sem skjálfta, ruglingi, kvölum í líkama og skelfilegum þorsta. Honum var einnig sagt á þessum tíma að „hann væri skotmark“ og yrði eltur uppi. Þá ákvað hann að yfirgefa Suður-Afríku í janúar 2017. Jóhannes Stefánsson segir að hann sé á lífi í dag vegna þeirra lífvarða sem hann var með á þessum tíma.“ Segir í fréttinni.

Þegar heim kom til Íslands hafði Jóhannes Stefánsson samband við WikiLeaks og afhenti þeim þúsundir af skjölum sem WikiLeaks birti undir kóðanafninu „Fishrot.“ Jóhannes Stefánsson lagði einnig fram upplýsingar til Al Jazeera fréttastofunnar.

„Lækna í heimalandi hans Íslandi grunar að eitrað hafi verið fyrir honum. Ísland býr því miður ekki yfir bestu mögulegu tækjum og þjónustu á sviði læknisfræði til að greina um hvaða eitur ræðir og veita honum þá meðferð sem þarf. Hann þarf því alþjóðlega aðstoð,“ segir í frétt The Namibian sem vísar til tilkynningar vegna söfnunarinnar. Jóhannes hefur sagt að íslenskum læknum beri saman um að einkennin sem hann hafi fundið fyrir eigi við um einstakling sem eitrað hefur verið fyrir. Stefnt er á að safna 75 þúsund evrum fyrir Jóhannes eða sem nemur um ellefu milljónum króna.

Uppljóstrarasamtökin Whistleblowing International, ANA LOGO og Whistleblower Network News, National Whistleblower Center standa fyrir söfnuninni í gegnum GoFundMe 2.100 evrur hafa safnast þegar fréttin er skrifuð sem svarar til um þrjú hundruð og fimmtiu þúsund krónum.

Jóhannes Stefánsson

.

Umræða
Share12Tweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Fólk hringir í Neyðarlínuna eftir sjúkrabíl til að losna við bið á Bráðamóttöku

    Hring­veg­ur­inn lok­að­ur vegna árekst­urs

    43 deilingar
    Share 17 Tweet 11
  • ESB neyðir Svíþjóð til að loka vatnsorkuverum

    17 deilingar
    Share 7 Tweet 4
  • Ekið á gangandi vegfaranda

    9 deilingar
    Share 4 Tweet 2
  • Lögreglan leitar manns

    4 deilingar
    Share 2 Tweet 1
  • Heimilt að segja upp starfmanni án áminningar

    31 deilingar
    Share 12 Tweet 8
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?