Hugleiðingar veðurfræðings
Núna í morgunsárið er fremur hæg vestlæg átt og rigning víða um land, en snjókoma á norðausturhluta landsins. Er líður á daginn dregur úr úrkomu en í kvöld snýst í norðaustanátt með kulda og éljum um norðanvert landið en birtir heldur til. Næstu daga er síðan útlit fyrir áframhaldandi norðlægar áttir og kulda á landinu með ofankomu norðantil en bjartvirði syðra.
Veðuryfirlit
Yfir Vestfjörðum er 1008 mb smálægð sem þokast A. Yfir NA-Grænlandi er 1029 mb hæð, en 500 km SV af Írlandi er 1030 mb hæð sem mjakast S.
Samantekt gerð: 03.04.2022 08:25.
Veðurhorfur á landinu
Vestlæg átt, 3-8 m/s, en austan 8-13 á Norðausturlandi. Rigning með köflum og hiti 1 til 7 stig, en snjókoma og vægt frost austanlands. Norðaustan 8-15 m/s í kvöld og á morgun, hvassast norðvestantil. Éljagangur og frost 0 til 6 stig, en bjartviðri og hiti 0 til 4 stig suðvestanlands.
Veðurhorfur á höfuðborgarsvæðinu
Vestan 3-8 m/s og dálítil súld eða rigning, en skúrir síðdegis.
Norðlæg átt, 5-10 m/s og bjart með köflum á morgun. Hiti 2 til 8 stig, en svalara á morgun.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á þriðjudag:
Norðaustan 8-15 m/s og él, en þurrt að kalla sunnantil. Frost 0 til 7 stig.
Á miðvikudag og fimmtudag:
Fremur hæg norðaustlæg eða breytileg átt og þurrt og bjart að mestu, en skýjað og dálítil él um landið austanvert. Áfram kalt í veðri og talsvert næturfrost inn til landsins.
Á föstudag og laugardag:
Útlit fyriri norðaustlæga eða breytilega átt með él á víð og dreif og fremur kalt í veðri.