• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Þriðjudagur, 11. nóvember 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Hugur lögreglu er hjá fólkinu

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
3. apríl 2023
in Fréttir, Innlent
A A
0

Lögreglan á Austurlandi birti þessa færslu á vef sínum vegna snjóflóða sem ollu lífshættu og tjóni og miklum vandræðum sem og hræðslu þar sem ekki er hægt að treysta á snjóflóðavarnir. Þá eiga þeir um sárt að binda sem eru að endurupplifa minningar um mannskæð snjóflóð á Austfjörðum og víðar.

Eftir að snjóflóðin féllu á Austfjörðum í byrjun s.l. viku fóru þangað stór hópur viðbragðs- og björgunaraðila, alls staðar af landinu, og var heimamönnum til aðstoðar í þessum erfiðu aðstæðum. Flóðin, sem vöktu upp vondar minningar, ollu miklu tjóni, en lýst var yfir hættustigi og fjölmörg hús voru rýmd.

Sem betur fer slasaðist enginn alvarlega og það var auðvitað fyrir mestu. Nú þegar hættustigi og rýmingum hefur verið aflétt hafa flestir hinna fyrrnefndu snúið aftur til síns heima, en meðfylgjandi mynd var tekin á Egilsstaðarflugvelli þegar hluti viðbragðs- og björgunaraðila flaug aftur til Reykjavíkur. Að sögn lögreglunnar í Reykjavík.

,,Lögreglan á Austurlandi þakkar íbúum öllum æðruleysi og samvinnu vegna gríðarlegrar ofankomu er gekk yfir fjórðunginn í vikunni sem leið.

Þá er þeim fjölmörgu þakkað er komu til aðstoðar við það tröllvaxna verkefni sem beið, félagar í Slysavarnafélaginu Landsbjörgu sem komu hvaðanæva að af landinu, lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu og sérsveit ríkislögreglustjóra, Landhelgisgæslu, slökkviliði höfuðborgarsvæðisins, Rauða krossinum, Vegagerð, Veðurstofu og fleiri. Ekki síður er þeim fjölmörgu heimamönnum sem gengu strax í öll þau verk er biðu þakkað kærlega samstarfið enn og aftur.

Þó veðrið hafi gengið niður er ljóst að margir eiga enn um sárt að binda. Hugur lögreglu er hjá þeim. Þjónustumiðstöð á vegum Ríkislögreglustjóra opnar í Egilsbúð í Neskaupstað á morgun. Allir íbúar á Austurlandi geta leitað þangað eftir aðstoð. Minnt er á hjálparsíma Rauða krossins, 1717.“

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Áskrifandi að kvóta og leigir fyrir milljónir af sundlaugabar í sólarlöndum

    Á ekki fyrir mat fyrir barnið sitt – Einstæð móðir á aðeins 459 krónur

    41 deilingar
    Share 16 Tweet 10
  • Kílómetragjald leiði ekki til óhóflegrar skattheimtu

    10 deilingar
    Share 4 Tweet 3
  • Loðin svör um 54 milljarða sem fóru í loftlagsmál

    6 deilingar
    Share 2 Tweet 2
  • ,,Aldrei greitt tekjuskatt á Íslandi frá stofnun, frekar en hin sjókvíaeldisfyrirtækin“

    8 deilingar
    Share 3 Tweet 2
  • Lög samþykkt sem auka réttarvernd og húsnæðisöryggi leigjenda og bæta upplýsingar um leigumarkaðinn

    2 deilingar
    Share 1 Tweet 1
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?