Nú er að ganga í garð „skerðinganna óvissu tími“ í lífi ellilífeyristaka
Eldra fólk á eftirlaunum hjá Tryggingastofnun ríkisins skilar inn tekjuáætlun til stofnunarinnar í árslok fyrir komandi ár. Þar tíunda þeir samviskulega væntanlegar tekjur sínar sem oftast eru tekjur úr lífeyrissjóði og örlitlar fjármagnstekjur af sparireikningum sínum sem eru oftar en ekki neikvæðir vextir sem þó teljast til tekna í væntanlegu uppgjöri.
Eldra fólk sem eru lífeyristakar reyna að skila samviskusamlega réttri tekjuáætlun fyrir komandi ár og taka yfirleitt tillit til áætlaðra hækkana á greiðslum úr lífeyrissjóði og jafnvel hana ríflegri en ætla má, til að hafa vaðið fyrir neðan sig.
Síðan hefjast reglulegar greiðslur frá Tryggingastofnun og um leið óvissa um hvort tekjuáætlunin standist gagnvart Tryggingastofnun og útreikningi hennar á eftirlaunum með tilliti til skatta og skerðinga. Greiðslur frá TR berast mánaðarlega á reikning eftirlaunatakans án teljandi upplýsinga um hvernig þær eru reiknaðar.
Nagandi óvissa
Þegar lífeyristakinn hefur síðan skilað inn skattskýrslu sinni fyrir tekjuárið fer af stað eftirá útreikningur hjá Tryggingastofnun hvort allt hafi nú verið rétt. Hvort stofnunin hafi ofgreitt til eldri borgarans – eða vangreitt. Hið síðarnefnda er miklu mun fátíðara að mati Tryggingastofnunar sjálfrar. Hún hefur einstakt lag á að skilja lög þrengsta skilningi – eftirlaunamanninum í óhag. Sú tíð er nú að koma, hin mikla óvissutíð uppgjörs.
Því stóri dómur fellur hjá Tryggingastofnun um einu og hálfu ári eftir að eftirlaunatakinn skilaði inn tekjuáætlun sinni fyrir árið sem liðið er. Margir eldri borgarar kvíða þessu uppgjöri. Fæstir búast við jákvæðum úrskurði því oftast er það svo að einhvern veginn tekst reiknimeisturum kerfisins að finna út í útreikningum sínum að lífeyristakinn hafi dregið sér fé frá Tryggingastofnun, ef svo má segja, og hann skuldi stofnuninni.
Ógagnsæi
Hið ógagnsæja kerfi sem búið hefur verið til og ellilífeyrir frá Tryggingstofnun grundvallast á veldur mörgum lífeyristakanum verulegum kvíða í löngum aðdraganda uppgjörsins og síðan oft örvilnan, reiði og vanmætti þegar stóri dómur fellur.
Þó svo að eftirlaunamaðurinn efist um niðurstöðu Tryggingastofnunar í uppgjöri hennar á hann erfitt með að beita sér í málinu. Hann mætir her lögfræðinga sem eru á launum hjá stofnuninni þegar hann skýtur máli sínu til úrskurðarnefndar velferðarmála. Stendur þá einn á móti þeim öllum. Fáir treysta sér í það ferli einir og óstuddir.
Sundurliðaður launaseðill frá TR
Það er með ólíkindum að eldra fólki sem fær eftirlaun frá Tryggingastofnun skuli ekki fá sundurliðaðan launaseðil um hver mánaðarmót. Á launaseðlinum ætti að koma fram hver full réttindi hans eru, bæði í krónutölu sem og prósentum. Því réttindi fólks eru misjöfn. Sá sem hefur lífeyristöku frá TR við 67 ára aldur, en sá sem hefur töku fyrr, t.d. við 65 ára aldur tekur á sig varanlega skerðingu lífeyris.
Eins getur lífeyristaki ákveðið að fresta lífeyristöku allt til 80 ára aldurs og ætti því að uppskera varanlega hækkun, bæði í krónum talið og prósentum.
Því er réttlætismál að eftirlaunatakinn fái vel sundurliðaðar greiðslur, eins og almennt gerist á vinnumarkaði. Allar grunntölur útreikninga til skerðinga koma frá tekjuáætlun eftirlaunatakans og hefur TR þær upplýsingar allar sem hún síðan vinnur með. Því er auðvelt fyrir TR að vinna með þessar tölur svo skýrt sé fyrir eftirlaunatakann hvernig skerðingar virka á fullum ellilífeyrisréttindunum.
Hægur leikur væri að forrita launaseðilinn þannig að þar komi fram lið fyrir lið hvernig einstakar greiðslur frá lífeyrissjóðum skerða grunnupphæðina sem og aðrar tekjur. Að viðbættu þessu síðan frádregnir skattar og gjöld.
Ef slíkur launaseðill birtist eftirlaunatakanum um hver mánaðarmót ætti hann auðveldara með að bregðast fyrr við og ef þörf væri á að uppfæra tekjuáætlun sína til að minnka hugsanlega örvilnan í lokauppgjöri sem margir kvíða fyrir. Því lífeyristakinn hefur rétt á að lagfæra tekjuáætlun sína einu sinni í mánuði ef hann telur þörf á því.
Hvaða launamaður á vinnumarkaði myndi láta bjóða sér svona ógagnsæa launaseðla eins og lífeyristökum er boðið upp á af Tryggingastofnun ríkisins?
Greinilega sundurliðaður launaseðill og gagnsæi í launaútreikningi er sjálfsagt mál á almennum vinnumarkaði. Af hverju ekki hjá Tryggingastofnun ríkisins?
Þetta vinnulag myndi auðvelda mörgum eftirlaunatakanum lífið og létta á símaveri TR um hver mánaðarmót. Öllum til hagsbóta, bæði eftirlaunatökum og starfsfólki TR.