Stella hefur haldið svartfuglum, jakkalökkum og glæponum við efnið
FRÉTTATILKYNNING – MÁL OG MENNING
Í dag kemur út ný glæpasaga eftir Stellu Blómkvist. Stella hefur haldið svartfuglum, jakkalökkum og glæponum við efnið í meira en tvo áratugi og á dyggan aðdáendahóp. Morðin í Háskólabíó er ellefta bókin um stjörnulögmanninn kjaftfora.
Prestur á líknardeild leitar til Stellu með hinstu játningu sem snýst um nauðgun og hvarf tólf ára stúlku norður á Ströndum tuttugu árum fyrr. Gömul kærasta Stellu verður fyrir dularfullri líkamsárás á Snæfellsnesi og skjólstæðingur ferst í hrikalegri sprengingu á flokksþingi Þjóðfrelsisflokksins í Háskólabíó. Það er því í nógu að snúast fyrir grjótharðan lögmann sem lætur ekkert stöðva sig í að fá réttlætinu framgengt.
„Íslenskur krimmi í hæsta gæðaflokki eftir dularfyllsta rithöfund landsins.“ – Smartland (um Morðið í Snorralaug)