Mikið líf hefur verið Flensborgarhöfn og við Óseyrarbryggju síðustu daga og vikur, en landburður hefur verið af fiski hjá smábátunum að sögn starfsmanna Hafnarfjarðarhafnar
Nokkrir kvótabátar hafa lagt upp í Hafnarfirði í vetur og aflabrögðin hafa verið sérlega góð síðustu vikur. Það er sannarlega rígaþorskur sem bátarnir hafa verið að sækja, og margir hafa ekki farið lengra en rétt út fyrir Helgasker og náð að fylla öll kör á skömmum tíma.
-Það er trúlega fullt af vænum þorski hérna vel innan við hafnarmynnið – sagði einn sjómaðurinn sem var að landa í morgun. Hvert karið af öðru með þorsk af stærstu gerð og ekkert lát á veiðinni.
Grásleppusjómenn voru einnig farnir af stað og aflabrögðin bærileg en veiðar þeirra hafa verið stöðvaðar í dag. Óvenju góð tíð hefur verið síðustu daga eftir leiðindabrælu lengst af í vetur og óhætt að segja að strandveiðsjómenn hafi beðið í ofvæni eftir að geta sótt í þann gula.