• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Laugardagur, 13. desember 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Ríkustu 5% landsmanna eiga um 40% af eignum í samfélaginu og nýr auður ratar mest til hinna ríku

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
3. maí 2021
in Fréttir, Innlent
A A
0

Það er nóg til – áherslur ASÍ inn í kosningabaráttuna

Í haust verður kosið til Alþingis en nýs þings bíður það risavaxna verkefni að byggja upp samfélagið eftir Covid kreppuna. Hvernig til tekst við þá uppbyggingu skiptir launafólk og alla Íslendinga miklu máli. Alþýðusamband Íslands birtir í dag ákall til frambjóðenda til Alþingis um að byggja samfélagið upp með sjálfbærni, jöfnuð og jafnrétti að leiðarljósi. Því fylgir mikil ábyrgð að varða veginn frá faraldri til farsældar.

Niðurskurðaraðferðinni sem beitt var eftir hrunið 2008 er hafnað enda hægði hún á efnahagsbatanum, ýtti undir ójöfnuð og jók á fátækt. Lærum af reynslunni. ASÍ kallar eftir skýrri sýn stjórnmálaflokkanna á afkomutryggingu, atvinnuuppbyggingu og aðgerðir sem gagnast þeim landsvæðum og hópum sem verst hafa orðið úti. Verkalýðshreyfingin hefur lagt sín lóð á vogarskálarnar í húsnæðismálum, en á sama tíma skortir heildarsýn af hálfu stjórnvalda. ASÍ fer fram á að stjórnmálaflokkar sem bjóða fram til Alþingis skýri áform sín í húsnæðismálum. Húsnæðisöryggi snýst um grundvallarréttindi.

Heilbrigðiskerfið hefur ekki náð að rétta úr kútnum eftir niðurskurð eftirhrunsáranna og viðvarandi sveltistefnu nýfrjálshyggjuáranna.
Niðurskurður er ógn við bæði heilsu og grundvallarréttindi. ASÍ styður þá stefnu að draga úr greiðsluþátttöku sjúklinga og stýra flæðinu úr krananum sem sérfræðilæknar hafa einir aðgang að. ASÍ mun aldrei fallast á áform um að draga úr framlögum til heilbrigðismála.

Launafólk gerir kröfu um réttláta hlutdeild í verðmætum sem skapast við breytingar á vinnumarkaði. Um það snýst hugmyndafræðin um réttlát umskipti. Þegar ódýrara verður að framleiða vörur og þjónustu með nýrri tækni á það að skila sér í bættum kjörum og styttri vinnuviku. Öflugt menntakerfi þar sem bókgreinum og iðn- og tæknimenntun er gert jafnhátt undir höfði og sí- og endurmenntun er samofin við formlega skólakerfið, er hornsteinninn að réttlátari framtíð.

Skipting auðs í heiminum er að verða eins ójöfn og hún varð verst á 19. öld. Mikil misskipting auðs kemur öllu samfélaginu illa. Á Íslandi eiga ríkustu 5% landsmanna um 40% af allri hreinni eign í samfélaginu og nýr auður ratar hlutfallslega mest til hinna ríku. Í sögulegu ljósi ýta kreppur undir ójöfnuð. Þess vegna verður að grípa til aðgerða til að draga úr ójöfnuði og það verður eitt mikilvægasta verkefni nýrrar ríkisstjórnar og nýkjörins Alþingis. Samfélög jöfnuðar eru sterkustu samfélög í heimi. ASÍ krefst þess að stjórnmálaflokkarnir skýri hvernig þeir ætla að vinna að auknum jöfnuði á Íslandi.

Þann 25. september verður kosið til Alþingis. Það er krafa ASÍ að allir flokkar sem bjóða fram setji fram skýra framtíðarsýn og stefnu um þau mál sem skipta launafólk og almenning mestu máli: afkomu, heilbrigðismál, húsnæðismál, menntamál og jöfnuð. Við samþykkjum ekki þá hugmynd að í íslensku samfélagi sé slíkur skortur á fjármunum að ekki sé hægt að standa með viðunandi hætti að rekstri samfélagsins.

Á Íslandi á enginn að líða skort – það er nóg til.

Drífa Snædal, forseti ASÍ:
„Það er nóg til. Í þeirri samfélagsumræðu sem er lifandi fyrir hverjar kosningar mun stjórnmálafólk ekki komast hjá því að setja fram skýra framtíðarsýn um brýnustu mál samtímans. ASÍ mun boða til samtals, hvetja félaga til að nýta kosningaréttinn og auðvelda félögum að kjósa með eigin hagsmunum.“

Nánari útfærslur er að finna í bæklingnum Það er nóg til

Umræða
Share68Tweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Niðurstaða um hvarf Geirfinns Einarssonar?

    ,,Geirfinnur var myrtur í bílskúrnum heima hjá sér – Vitni horfði á drápið“

    243 deilingar
    Share 97 Tweet 61
  • Mohamed og Amir dæmdir fyrir nauðgun – með alþjóðlega vernd á Íslandi

    16 deilingar
    Share 6 Tweet 4
  • Vitni óskast að banaslysi

    54 deilingar
    Share 22 Tweet 14
  • Húsnæðiskaup: Vaxta- og afborgunarlaus lán frá ríkinu

    77 deilingar
    Share 31 Tweet 19
  • Kærður fyrir hnupl í kynlífstækjaverslun

    2 deilingar
    Share 1 Tweet 1
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?