„Þetta var frábær dagur í Eyjum. Við áttum mjög gagnlega vinnufundi á sjúkrahúsinu og í Hraunbúðum og við Íris bæjarstjóri tókum fundinn okkar bara úti í góða veðrinu. Samtalið um heilbrigðismálin á Vigtinni bakhúsi var gott og nú þurfum við jafnaðarmenn að standa undir væntingum.“ Sagði Kristrún Frostadóttir formaður Samfylkingarinnar í viðtali við fréttamiðilinn Eyjafréttir í Vestmannaeyjum.
,,Við ætlum að kynna útspil í heilbrigðismálum næsta haust sem byggir meðal annars á þessari vinnu. Þar á eftir tökum við fyrir atvinnu og samgöngur og þá komum við aftur til Eyja.
Ég vil bara þakka fyrir mig í bili og óska Eyjamönnum til hamingju með Íslandsmeistaratitilinn í handbolta!“ sagði Kristrún Frostdóttir, formaður Samfylkingarinnar eftir fundinn í Vigtinni á miðvikudaginn. Alla frétt Eyjafrétta má lesa HÉR
Umræða