Dæmdar bætur vegna ólögmætrar uppsagnar
Hæstiréttur hefur staðfest dóm héraðsdóms og dæmt Sveitarfélagið Ölfus til að greiða félagsmanni SFR 2,5 milljónir króna vegna ólögmætrar uppsagnar.
Félagsmanninum var vikið úr starfi í kjölfar atviks á sambýli sem átti sér stað milli hans og íbúa sambýlisins, að því er segir í frétt á vef SFR. SFR er eitt aðildarfélaga BSRB.
Atvikið átti sér stað þegar félagsmaðurinn beitti sér samkvæmt starfsreglum vinnustaðar, í ástandi sem kallaði á að starfsmenn næðu stjórn á aðstæðum. Aðilar deildu um lögmæti uppsagnarinnar og hvort félagsmaðurinn ætti rétt á skaða- og miskabótum vegna hennar.
Héraðsdómur hafði áður dæmt á þann veg að sveitarfélagið Ölfus hefði brotið gegn rannsóknarreglu stjórnsýslulaga með því að láta ekki fara fram fullnægjandi rannsókn á atvikinu og þeim ávirðingum sem bornar voru á félagsmanninn, áður en honum var vikið úr starfi. Af þeim sökum hefði uppsögnin verið ólögmæt.
Hæstiréttur hefur nú staðfest dóm héraðsdóms og taldi einnig að félagsmaðurinn ætti rétt á skaðabótum frá sveitarfélaginu vegna ólögmætrar uppsagnar. Skaðabætur voru dæmdar 2 milljónir króna og miskabætur 500 þúsund krónur. Þá var sveitarfélaginu gert að greiða allan málskostnað, alls á 2,5 milljónir króna.
Tveggja ára barátta
Það tók þetta mál tvö ár að komast í gegnum dómskerfið en niðurstaðan er mikilvæg fyrir opinbera stafsmenn þar sem Hæstiréttur hefur með óyggjandi hætti tekið á ólögmæti fyrirvaralausra uppsagna.
Í störfum opinberra starfsmanna geta komið upp vafaatriði sem kalla á faglega skoðun á vinnustöðum. Það er mikilvægur sigur að Hæstiréttur gagnrýni í dómi sínum framtaksleysi sveitarfélagsins í málinu og því ber að fagna.