Leit lögreglu af Maríu Ósk Sigurðardóttur stendur enn yfir. Björgunarsveitir hafa verið kallaðar út
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Maríu Ósk Sigurðardóttur, 43 ára, til heimilis í Grafarvogi í Reykjavík. María, sem er með húðflúr á hlið vinstri handar, er 163 sm á hæð, grannvaxin og með gráleitt, axlarsítt hár. Hún er líklega klædd í svartar gallabuxur og lopapeysu, svarta og hvíta yfir mitti.
María hefur til umráða hvítan Dacia Duster, skráninganúmer VY-J76. Þeir sem geta gefið upplýsingar um ferðir Maríu, eða vita hvar hún er niðurkomin, eru vinsamlegast beðnir um að hafa tafarlaust samband við lögregluna í síma 112.
Umræða