• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Föstudagur, 20. febrúar 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Bann við algengum plastvörum tekur gildi

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
3. júlí 2021
in Fréttir, Innlent
A A
0
Bann við að setja tilteknar, algengar einnota vörur úr plasti á markað tekur gildi í dag. Meðal vara sem bannað er að setja á markað eru einnota bómullarpinnar úr plasti, plasthnífapör og -diskar, sogrör, hræripinnar og blöðrustangir. Matarílát, drykkjarílát, glös og bollar úr frauðplasti eru einnig óheimil. Undantekningar eru gerðar ef vörur flokkast sem lækningatæki.

Bannið  byggir á breytingu á lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir, sem Alþingi samþykkti árið 2020 og miðar að því að draga úr notkun óþarfa plasts í samfélaginu.  Þá er ekki heimilt að afhenda án endurgjalds einnota bolla, glös og matarílát úr plasti t.d. þegar matur og drykkur er seldur til brottnáms (e. take-away) og skal gjaldið vera sýnilegt á kassakvittun.

Fáanlegar eru á markaði staðgönguvörur sem eru margnota eða innihalda ekki plast og nota má í stað þeirra vara sem breytingarnar taka til. Þá hafa verslanir staðið sig vel í að hætta að bjóða upp á einnota plastpoka á afgreiðslusvæðum (kassasvæði) í samræmi við plastpokabannið. Mikilvægt er að dregið verði enn frekar úr notkun á einnota burðarpokum úr öðrum efnum, svo sem pappír, og ráðuneytið mun í haust halda áfram vinnu með versluninni og Umhverfisstofnun við að innleiða margnota lausnir.

Síðastliðið haust gáfu Stjórnvöld út aðgerðaáætlun í plastmálum, Úr viðjum plastsins, þar sem settar eru fram 18 aðgerðir til þess að draga úr plastnotkun, auka endurvinnslu þess og sporna gegn plastmengun í hafinu. Þær breytingar sem nú taka gildi eru hluti af þessari áætlun.

Með frumvarpinu er innleidd að stærstum hluta ný Evróputilskipun sem er fyrst og fremst beint að ýmsum algengum plastvörum sem finnast helst á ströndum. Tilskipuninni er einnig ætlað að styðja við myndun hringrásarhagkerfis og draga úr myndun úrgangs. Gert er ráð fyrir að lögin taki að stærstum hluta gildi í dag, 3. júlí 2021.

Umræða
Share1Tweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Sala ríkisins á Íslandsbanka og erindi Arion banka um sameiningu

    Fjármálaráðherra vill að HS Orka, Bláa Lónið ofl. greiði varnargarða

    37 deilingar
    Share 15 Tweet 9
  • Meint kynferðisbrot: ,,Sýknaður af ákæru og tilhæfulausum ásökunum“

    13 deilingar
    Share 5 Tweet 3
  • Andrew handtekinn

    8 deilingar
    Share 3 Tweet 2
  • Lýsa yfir stuðningi við vísitölutengingu lífeyris

    7 deilingar
    Share 3 Tweet 2
  • Tekinn af lífi á netinu og ranglega sakaður um alvarleg kynferðisbrot

    36 deilingar
    Share 14 Tweet 9
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?