Ingólfur Þórarinsson, betur þekktur sem Ingó veðurguð, mun gefast tækifæri til þess að „frumflytja“ Þjóðhátíðarlagið sitt í Herjólfsdal þetta árið. Þetta kom fram í tilkynningu til Eyjafrétta.
Þar segir að ,,venju samkvæmt verði Ingó þannig einn af listamönnum hátíðarinnar nú og líkt og undanfarin ár stýrir hann hinum geysivinsæla brekkusöng á sunnudagskvöldinu sem Árni Johnsen gerði ódauðlegan. En Ingó hefur haldið stemningu meðal Þjóðhátíðargesta síðan 2013.
Í ár gefst honum þó tækifæri til þess að flytja í fyrsta sinn í Herjólfsdal Þjóðhátíðarlagið sitt „Takk fyrir mig“, sem átti að vera lag hátíðarinnar 2020. En hátíðin var ekki haldin í fyrra sökum samgöngutakmarkana í kjölfar heimsfaraldursins Covid-19. Ingó verður þannig hluti af kvölddagskrá laugardagsins. Þjóðhátíðarlagið 2021 verður þó vafalaust frumflutt á sínum sínum hefðbundna tíma í föstudagsdagskránni kl. 20:30. Lagið í ár ber titilinn „Göngum í takt“ og er höfundur þess Hreimur Örn Heimisson sem samið hefur nokkur lög hátíðarinnar.“
Discussion about this post