• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Login
Sunnudagur, 28. maí 2023
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
Frettatiminn
No Result
View All Result

Segir að varðskip hafi verið sent til að reka trillur af veiðislóð

Ágreiningur um túlkun á reglum um strandveiðar smábáta

ritstjorn by ritstjorn
3. ágúst 2021
in Fréttir, Innlent
0
Share on FacebookShare on Twitter

ÞEIR GERÐU ÞAÐ AFTUR!

Smábátasjómaður segir farir sínar ekki sléttar vegna túlkunar á reglum um strandveiðar smábáta og birti eftirfarandi grein í lokuðum hópi strandveiðimanna.
,,Fyrir tveimur vikum sendi Fiskistofa með fulltingi Landhelgisgæslunnar fullmannað herskip með fallbyssu framan á til þess að reka mig og annan af veiðislóð við Flatey á Skjálfanda. Allt á kostnað skattgreiðenda og kolefnisspors landsins.

Ástæðan var sú að við værum austan einhverrar línu milli strandveiðisvæðis B og C. Í reglugerðinni er ekkert tilgreint hvar veiða á, aðeins að fiskiskip skuli landa sínum afla á sínu svæði, eðlilega, (3. málsgrein 3. greinar Reglugerðar um strandveiðar fiskveiðiárið 2020/2021)

Þetta er byggðasjónarmið ekki fiskveiðistjórnun. Auk þessa er þessi lína hvergi hnitsett og mismunandi eftir kortum. Þessi lína nemur á korti Fiskistofu við norðurodda Grímseyjar. Grímseyingar mættu því einungis veiða vestan við sína eigin eyju. Við höfðum samband við ráðuneytið, ráðherra og yfirmenn hjá Fiskistofu og þessi hernaðaraðgerð var stöðvuð samstundis með mikilli sneypu fyrir nýbakaðan skipherra herskipsins.

Skilningur ráðuneytisins er annar en Fiskistofu.
Nú í kvöld kom svo annað kall frá Landhelgisgæslunni til báts sem sigldi til Flateyjar og ætlaði að veiða þar á morgun. Hótun um kæru fylgdi þessu kalli gæslunnar. Túlkunin var sú í þetta sinn að ekki mætti tilkynna sig úr höfn á öðru svæði en landað væri á.

Hvergi er getið um þetta í umræddri reglugerð né lögunum.
Það er ágiskun mín að einhver innanbúðar hjá annaðhvort Fiskistofu eða Landhelgisgæslunni sé eitthvað tengdur einhverjum á Svæði C sem er í nöp við að vestanmenn séu að veiða við Flateyna og fái viðkomandi opinberan starfsmann til þess að túlka reglugerðina eftir sínu höfði.

Ef svo er þá er það háalvarlegt mál þar sem eftirlitsaðilar eru þarna að sóa peningum skattgreiðenda og gera sig að athlægi. Þekkja menn hér einhver svona dæmi á öðrum „landamærum“ strandveiðanna?“ Segir smábátasjómaðurinn.

Discussion about this post

  • Samgöngustofa hættir innheimtu bifreiðagjalda

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • NÝ ÖKUSKÍRTEINI

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • Lífið eftir framhjáhald og daður á samfélagsmiðlum

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • Teitur Björn Einarsson færir ítarleg rök gegn stjórnarfrumvarpi

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • Vændiskonur frömdu vopnað rán

    0 shares
    Share 0 Tweet 0

Fréttatíminn © 2023

No Result
View All Result
  • Home
  • Landing Page
  • Buy JNews
  • Support Forum
  • Contact Us

Fréttatíminn © 2023

Welcome Back!

Login to your account below

Forgotten Password?

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Log In
Are you sure want to unlock this post?
Unlock left : 0
Are you sure want to cancel subscription?