Smári McCarthy flaug til Keflavíkur til að skoða vígbúnaðinn sem að fylgir Mike Pence á fund með Katrínu Jakobsdóttur og Guðlaugi Þór Þórðarsyni
,,Í tilefni hundrað ára afmæli flugs á Íslandi í dag flaug ég áðan út í Keflavík og skoðaði þessar herþotur og Ospreya sem komu vegna heimsóknar Mike Pence. Það segir eitthvað, að þessi varaforseti geti ekki komið til Íslands án herfylgdar, nema hvað hann heimsækir reglulega lönd án svona vígbúnaðar.
Í nýlegri heimsókn til Írlands fylgdi honum einn Globemaster og tveir Blackhawk. Nú eru Globemasterarnir þrír og þrír Ospreyar til viðbótar. Enda snýst þessi heimsókn 100% um „power projection“, alveg sama hvað ríkisstjórnin neitar því.
Að auki trúi ég ekki öðru en að á næstu mánuðum komi beiðni frá Bandaríkjunum um einhverskonar aukna hervæðingu á Íslandi. Ég ætla að fylgist vel með þessu og reyna að gera mitt til að þetta fari ekki úr böndunum. Að við tökum þátt í virku varnarsamstarfi er eitt. Að við gerumst undirokaðir skósveinar í geopólitísku valdabrölti heimsveldis er allt annað.“ Sagði Smári McCarthy um komu Mike Pence sem á fund með Katrínu Jakobsdóttur og Guðlaugi Þór Þórðarsyni um líklegast hernaðarmál, viðskipti ofl.