Í vikunni kom hingað til lands Airbus H225 þyrla Air Greenland sem var í ferjuflugi frá Póllandi til Grænlands. Áhöfnin hafði viðkomu hér á landi og var þyrlan geymd við flugskýli Landhelgisgæslunnar.
Air Greenland festi nýverið kaup á tveimur H225 þyrlum en tvær af þyrlum Landhelgisgæslunnar eru sömu tegundar. Landhelgisgæslan hefur verið Air Greenland innan handar vegna þjálfunar og samtarf verður á milli Gæslunnar og flugfélagsins vegna varahluta og annars búnaðar fyrir þyrlurnar.
Þyrlan var geymd við flugskýli Landhelgisgæslunnar.
Umræða