• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Mánudagur, 30. júní 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Friðlýstur þjóðgarður mun gilda um: Vatnsfjörð, Surtarbrandsgil, Geirþjófsfjörð og jarðir við Arnarfjörð

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
3. nóvember 2020
in Fréttir, Innlent
A A
0

Mikil tækifæri í stofnun þjóðgarðs á sunnanverðum Vestfjörðum

Umhverfisstofnun hefur kynnt áform um stofnun þjóðgarðs á sunnanverðum Vestfjörðum. Stofnunin vinnur nú ásamt samstarfshópi að undirbúningi friðlýsingar fyrir svæði sem m.a. nær til Vatnsfjarðar, Surtarbrandsgils, Geirþjófsfjarðar og jarðanna Dynjanda og Hrafnseyrar við Arnarfjörð

Í september 2019 færði RARIK íslenska ríkinu jörðina Dynjanda að gjöf. Við undirritun samkomulags vegna gjafarinnar staðfestu stjórnvöld að stefnt væri að frekari friðlýsingu jarðarinnar og vatnasviðs fossins á Dynjandisheiði.

Unnið er að friðlýsingu fyrir Vatnsfjörð, Surtarbrandsgil, Geirþjófsfjörð og jarðirnar Dynjanda og Hrafnseyri við Arnarfjörð. Mynd: Geirþjófsfjörður

Í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar er kveðið á um að skoðaðir verði möguleikar á þjóðgörðum á öðrum svæðum en miðhálendi Íslands. Á grundvelli átaks í friðlýsingum sem umhverfis- og auðlindaráðherra setti á fót í júní 2018, hefur m.a. verið unnið að þessari skoðun m.t.t. gjafar RARIK. Í byrjun ársins 2020 hófst undirbúningsvinna með Vesturbyggð, Ísafjarðarbæ og Umhverfisstofnun. Í kjölfarið var stofnaður samráðshópur undir forystu umhverfis- og auðlindaráðuneytisins skipaður fulltrúum sveitarfélaganna tveggja, Umhverfisstofnunar, Landgræðslusjóðs sem eiganda jarðarinnar Langa-Botns í Geirþjófsfirði, forsætisráðuneytisins sem umsjónaraðila Hrafnseyrar við Arnarfjörð og mennta- og menningarmálaráðuneytisins.
„Á Íslandi eru fáir þjóðgarðar, ekki síst miðað við hversu stórfenglega náttúru hér er að finna. Þjóðgarðarnir okkar þrír hafa hver sína sérstöðu þar sem náttúruverðmæti, saga og menning tvinnast saman í órjúfanlega heild. Einhvern tímann heyrði ég þá líkingu að þjóðgarðar væru eins og betri stofan; þar eru okkar fínustu djásn sem við viljum vernda, þar njótum við samveru og upplifunar ásamt því að bjóða þangað gestum.

Mikil tækifæri í stofnun þjóðgarðs

Ég sé mikil tækifæri í stofnun þjóðgarðs á sunnanverðum Vestfjörðum, ekki síst fyrir vernd náttúru og menningar okkar, en  líka vegna tækifæra til atvinnusköpunar sem felast í þessu aðdráttarafli fyrir landshlutann  í heild sinni, enda svæðið einstakt og ólíkt öðrum svæðum þar sem í dag eru þjóðgarðar“, sagði Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra.
Frekari upplýsingar um áform um stofnun þjóðgarðs er að finna á vef Umhverfisstofnunar en vakin er athygli á því að Umhverfisstofnun stendur fyrir söfnun á hugmyndum að nafni á þjóðgarðinn.

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Salmonella staðfest

    Salmonella staðfest

    28 deilingar
    Share 11 Tweet 7
  • Strandveiðibátur sökk úti fyrir Patreksfirði

    16 deilingar
    Share 6 Tweet 4
  • Áskrifandi að kvóta og leigir fyrir milljónir af sundlaugabar í sólarlöndum

    22 deilingar
    Share 9 Tweet 6
  • Ungar konur réðust á gamla konu og stungu hana og lömdu

    84 deilingar
    Share 34 Tweet 21
  • Strandveiðisjómaður lést

    3 deilingar
    Share 1 Tweet 1
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Add New Playlist

No Result
View All Result
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

Fréttatíminn © 2023

Are you sure want to unlock this post?
Unlock left : 0
Are you sure want to cancel subscription?