Þrír leiðsöguhundar keyptir árið 2018! Blindrafélagið, samtök blindra og sjónskertra á Íslandi, gefur út dagatal fyrir árið 2019 með myndum af leiðsöguhundum. Tilgangurinn með útgáfu þess er að fjármagna kaup og þjálfun leiðasöguhunda fyrir blinda einstaklinga. Árið 2018 náði Blindrafélagið að styrkja kaup á þrem leiðsöguhundum. Blindrafélagið telur mikilvægt að tryggja stöðugt framboð leiðsöguhunda fyrir blinda hér á landi, eins og raunin er í nágrannalöndum okkar, enda hafa þeir margsannað mikilvægi sitt. Dagatalið er sent heim til allra velunnara félagsins auk þess er hægt að fá dagatalið keypt hjá Blindrafélaginu, Bónus og A4. Á Íslandi eru starfandi átta leiðsöguhundar fyrir blinda fyrir tilstuðlan Blindrafélagsins og er þörf fyrir mun fleiri. Þjálfun leiðsöguhunds fyrir blindan einstakling er mjög sérhæfð og tímafrek. Hver leiðsöguhundur getur unnið á bilinu 8-10 ár og allan þann tíma, á hverjum einasta degi, bætir hundurinn lífsgæði notanda síns umtalsvert. Dagatalið í ár prýðir aðallega leiðsöguhundinn Bono en hann tók til starfa í Reykjavík árið 2015. Hann er íslenskur hundur og þjálfaður á Íslandi. Hægt er að kaupa dagatalið í vefverslun Blindrafélagsins (www.blind.is) og í síma 525 0000. Dagatalið kostar 1939 krónur. Einnig er hægt að fá dagatalið í Bónus sem og A4. Hér er hægt að nálgast myndir af honum Bono sem teknar voru af ljósmyndaranum Hörpu Hrund Bjarnadóttur (www.harpahrund.is) |
|
|