Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra vekur athygli á slæmri veðurpsá á suðurlandi í nótt og á morgun:
English below
Hvessir talsvert í nótt og á morgun um landið sunnanvert og stormur á þeim slóðum seinnipartinn á morgun og jafnvel staðbundið rok syðst á landinu og í Öræfum og hviður þar yfir 40 m/s. Viðbúið að því geti fylgt talsverður skafrenningur fram eftir morgundegi þar til hlánar og verði síðan mjög mikil hálka. Vegfarendur sýni aðgát.
Increasing considerably tonight and tomorrow in the S-part of Iceland with strong gale in the afternoon and even localized storm in the most southern part of Iceland by Mýrdalsjökull and Öræfajökull and gusts there over 40 m/s. Expect bad visability in blowing snow tomorrow morning until later when it thaws at which point the roads can become very slippery. Travellers exerzise caution.
Varað er við lélegu skyggni þegar lausamjöllin fer af stað í fyrramálið, víða SV-lands og austur með suðurströndinni. M.a. á Kjalarnesi, Suðurlandsvegi ofan Rvk sem og í efri byggðum Hbsv. Hlánar á láglendi neðan 200 m. og hætt er við flughálku. Hvessir enn frekar upp úr hádegi.
Áætlun um lokanir á vegum vegna veðurs 5. og 6. febrúar 2019.
Búast má við að eftirfarandi vegir lokist eða verði ófærir vegna veðurs þriðjudaginn 5. og miðvikudaginn 6. febrúar meðan veður sem spáð er gengur yfir.
Hvolsvöllur – Vík
Lokun kl. 12:00. 5. feb.
Líkleg opnun: kl 04:00 6. feb.
Skeiðarársandur og Öræfasveit (Núpsstaður-Höfn)
Lokun kl. 16:00 5. feb.
Líkleg opnun: kl 10:00 6. feb.
Hellisheiði og Þrengsli
Lokun kl. 06:00 5. feb.
Líkleg opnun 05:00 6. feb.
Kjalarnes
Lokun kl. 07:00 5. feb.
Líkleg opnun 12:00
Mosfellsheiði
Lokun kl. 07:00 5. feb.
Líkleg opnun 05:00 6. feb.
Færð og aðstæður
Yfirlit: Vetrarfærð er víðast hvar á landinu, hálka, hálkublettir eða snjóþekja á vegum. Kalt er í veðri norðanlands en hiti kominn um og yfir frostmark sunnanlands
Höfuðborgarsvæðið: Hálkublettir eru á flestum stofnbrautum.
Suðvesturland: Hálka eða hálkublettir á langflestum leiðum og skafrenningur er á Hellisheiði.
Vesturland: Hálka á flestum leiðum en snjóþekja og skafrenningur er á Vatnaleið og við Hafursfell. Skafrenningur er er einnig undir Hafnarfjalli og á Vestfjarðavegi í Dölum.
Vestfirðir: Víðast hvar hálka á vegum en þæfingsfærð er norður í Árneshrepp. Skafrenningur er á nokkrum fjallvegum og éljagangur á Ströndum.
Norðurland: Hálka eða hálkublettir á flestum aðalleiðum og víða snjóþekja á útvegum.
Norðausturland: Hálka flestum vegum en éljagangur á Tjörnesi. Þungfært er á Hlíðarvegi milli Axlar og Eyvindarstaða.
Austurland: Hálka eða snjóþekja víðast hvar. Snjókoma er í Breiðdal en éljagangur er á Fagradal.
Suðausturland: Hálka eða hálkublettir eru á vegum og einhver éljagangur.
Suðurland: Víðast hvar hálka eða snjóþekja.
Ábending til vegfarenda
Kalt veður með stífri norðanátt hefur mótað aðstæður á vegi þannig að hálkuvörn binst illa við yfirborð vegar. Hluti hálkuvarnarefnis fýkur af við dreifingu og öðrum hluta feykir umferð burt. Yfirborð vegar getur því orðið hált áfram þrátt fyrir hálkuvarnir.
Framkvæmdir á Suðurlandsvegi
Vegna vinnu við að breikkun Hringvegar er hámarkshraði takmarkaður við 70 km/klst á um 3 km kafla frá Hveragerði austur að Kotstrandarkirkju. Á afmörkuðum köflum við Varmá og austur fyrir gatnamót að Ölfusborgum er hámarkshraði takmarkaður við 50 km/klst. Einnig á vestri enda Hvammsvegar við vegamótin að Hringvegi. Framúrakstur er bannaður á framkvæmdasvæðinu. Áætluð verklok eru 1. mars nk.
https://www.fti.is/2019/02/04/a-morgun-ma-buast-vid-austan-hvassvidri-eda-stormi/