• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Laugardagur, 17. maí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Ríkisstjórnin þegir um sárafátækt á Íslandi

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
4. mars 2020
in Fréttir, Innlent
A A
0

,,Á meðan er fólk sem lifir í allsnægtum og hefur aðallega áhyggjur af því hvort það þurfi að fresta skíðaferðinni út af faraldrinum“

Eftir mjög sláandi umfjöllun um sárafátækt á Íslandi í fréttaskýringarþættinum Kveik í gær, lék ritstjórn Fréttatímans forvitni á að lesa um persónulega upplifun helstu stjórnmálaleiðtoga landsins á því sem kom fram í þessum vandaða þætti. Þar sem var talað við fólk í fullri vinnu á Íslandi, sem átti ekki fyrir mat né læknisþjónustu. Einnig var rætt við þá sem hljóta aðstoðar félagslega kerfisins sem voru í enn verri stöðu. Eftir nokkra leit af skrifum um upplifun ráðamanna Íslands á þessum hörmungum, fannst ekki stafkrókur um þáttinn hjá neinum þeirra.
Það er greinilega of langt í kosningar til þess að taki því að vera að eyða áhyggjum í svanga og blanka þegna landsins og þúsundir barna sem búa við sárafátækt. Enda kannski frekar ólíklegt að atkvæði þeirra rati til ráðandi afla á Alþingi í dag. Hverju sem því líður, kaus enginn af landsfeðrum Íslands að tjá sig um málefnið sem er þó mun brýnna en allt það sem þessum umboðsmönnum okkar var efst í huga miðað við þau hugarefni sem þeim þótti vert að vekja athygli á, svona út á við.

Drífa Snædal fjallar um þátt Kveiks

Drífa Snædal virðist vera sú eina sem hefur tjáð sig um þennan sláandi þátt um sárafátækt þúsunda Íslendinga og barna en hún segir:
,,Takk Kveikur fyrir góðan þátt í kvöld. Það er stór breyting að fólk sem lifir við fátækt neitar að skammast sín og krefst þeirrar lágmarksvirðingar að geta framfleytt sér og veitt börnunum sínum gott líf. Veikindi og örorka er ávísun á fátækt hér á landi og jafnvel fólk sem vinnur fulla vinnu getur ekki lifað með reisn. Að halda fólki í fátækt er hættulegt fyrir einstaklinga og hættulegt fyrir samfélög.
Á meðan er fólk sem lifir í allsnægtum og hefur aðallega áhyggjur af því hvort það þurfi að fresta skíðaferðinni út af faraldrinum. Það er vitlaust gefið en við höfum tækin til að breyta. Þau heita skattkerfi, auðlindagjöld og velferðarkerfi. Við þurfum að beita þeim kerfum miklu markvissari til að jafna stöðuna og ekki síst að tryggja að enginn lifi við fátækt í okkar ríka landi.“ Sagði Drífa Snædal um þáttinn sem sumir kjósa að þegja um.

Fær 250.000 kr. útborgað og borgar 240.000 kr. í leigu – Með 30 ára starfsreynslu

https://gamli.frettatiminn.is/faer-250-000-kr-utborgad-og-borgar-240-000-kr-i-leigu-med-30-ara-starfsreynslu/?fbclid=IwAR1XzL6h1LizWFaif-6FGuHr7TkdOO_aUlR-wNS6qc-cKrpU_tE4AIwRvrg
 

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Leigja frá sér á 500.000 kr. en greiða sjálfir 26.000 kr.

    Leigja frá sér á 500.000 kr. en greiða sjálfir 26.000 kr.

    16 deilingar
    Share 6 Tweet 4
  • Fíkniefnasali hlær að bönkunum og lánar á betri kjörum

    184 deilingar
    Share 74 Tweet 46
  • Íslendingar í Panama-skjölunum – Aflandsfélög í skattaskjólum?

    128 deilingar
    Share 51 Tweet 32
  • Togarar á strandveiðum

    15 deilingar
    Share 6 Tweet 4
  • Innflytjendur kosta hundrað milljarða á ári – Opin landamæri Schengen

    6 deilingar
    Share 2 Tweet 2
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?