Íslenskur tippari hafði heppnina með sér í gær þegar hann vann 104 milljónir króna. Fékk hann 13 rétta á Enska getraunaseðilinn og vann með því hæsta vinning sem unnist hefur hjá Íslenskum getraunum frá upphafi.
Síðasti leikurinn á getraunaseðlinum var viðureign Man. Utd. og Leicester og áður en sá leikur fór fram var ljóst að tipparinn myndi fá 13 rétta ef leikurinn færi jafntefli og 104 milljónir króna í vinning.
Sigur Leicester myndi líka þýða 13 rétta og vinning upp á 65 milljónir króna. Sigur Man. Utd. þýddi hinsvegar að tipparinn fengi aðeins 12 rétta og ríflega 200.000 krónur í sinn hlut. Úrslit leiksins voru jafntefli 1-1 og tipparinn 104 milljónum króna ríkari.
Tipparinn, sem er búsettur í Kópavogi, tvítryggði átta leiki, þrítryggði einn leik og 4 leikir voru með einu merki og kostaði getraunaseðillinn því 10.752 krónur.
Umræða