Fimm voru handteknir fyrir að skipuleggja hryðjuverk í Svíþjóð. ,,Þeir voru handteknir fyrir afbrot sem tengjast hryðjuverkum,“ segir öryggislögreglan þar í landi og segir að áætlanir þeirra megi tengja við IS.
Fólkið var handtekið eftir samræmdar aðgerðir í Eskiltuna, Linköping og Strängnäs, segir öryggislögreglan í Svíþjóð í fréttatilkynningu.
Lögreglan telur að hinir handteknu hafi skipulagt hryðjuverkaárásir í Svíþjóð og að það kunni að hafa tengst Kóranbrennunni í Stokkhólmi í janúar og telja að fyrirhuguð brot kunni að tengjast ofbeldisfullum öfgatrúum íslamista.
Lögreglan vill ekkert segja til um kyn og aldur hinna handteknu, en segir að engin hryðjuverkaógn hafi beinst gegn almenningi í tengslum við handtökurnar.
,,Það sem ég get sagt þér er að við getum tengt þetta mál við hryðjuverkasamtökin IS, segir Karin Lutz hjá lögreglunni“ Kóranbrennan hafi átt sér stað þann 21. janúar á þessu ári. Þá mómælti hægri róttæki dansk-sænski lögfræðingurinn og stjórnmálamaðurinn Rasmus Paludan fyrir utan tyrkneska sendiráðið í Stokkhólmi og kveikti í Kóraninum.