• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Laugardagur, 14. mars 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Styttra nám í háskólum með samþykkt frumvarps um örnám

Styttra nám í háskólum með samþykkt frumvarps um örnám

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
4. apríl 2024
in Fréttir, Innlent
A A
0

Frumvarp um breytingar á lögum um háskóla sem snúa að örnámi og prófgráðum úr diplóma- og viðbótarnámi var samþykkt á Alþingi fyrir páska.

Áform um breytingarnar voru fyrst kynnt í lok árs 2023 en hingað til hefur örnám ekki verið sérstaklega nefnt í lögum um háskóla. Með þessu er heimild háskóla til að bjóða upp á örnám til námseininga lögfest. Örnám felur í sér staðlaðar námseiningar og lýtur öllum gæðakröfum sem gerðar eru til náms á háskólastigi. Örnám hefur vaxið hratt í Evrópu á liðnum árum, ekki síst vegna krafna atvinnulífs og einstaklinga um hæfniþróun og endurmenntun í formi styttri námsleiða. Íslenskir háskólar hafa verið jákvæðir gagnvart örnámi sem leið til að auka tækifæri til háskólanáms fyrir fjölbreytta hópa.

,,Örnám er nýtt og spennandi tæki sem veitir háskólum á Íslandi tækifæri til að hreyfa við námsframboði sínu og auka sveigjanleika þess. Vonir standa til þess að framboð örnáms hvetji fjölbreyttan hóp nemenda til að skrá sig í nám, þannig geta háskólarnir enn betur gegnt samfélagslegu hlutverki sínu, t.a.m. gagnvart fólki af erlendum uppruna, fólki með fötlun eða aðrar sérþarfir eða til að auka hlut karla í háskólanámi hér á landi,” sagði Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra þegar hún mælti fyrir breytingarfrumvarpinu í upphafi árs.

Auk lögfestingar á heimild háskóla til að bjóða upp á örnám til námseininga fela lagabreytingarnar í sér svigrúm til háskóla til að aðlaga diplómapróf og viðbótarpróf á meistarastigi til 1. ágúst 2025 samkvæmt óskum háskólanna. Breytingarnar eru einnig liður í uppfærslu á gildandi viðmiðum um æðri menntun og prófgráður. Í þessu felst m.a. að lágmark ECTS-eininga til diplóma- og viðbótarprófs á meistarastigi hækkar úr 30 í 60 ECTS og opnað er á möguleika á veitingu M.Phil.-prófs á doktorsstigi.

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Ekkert ferðaveður og allt að 35 m/s

    Ekkert ferðaveður og allt að 35 m/s

    76 deilingar
    Share 30 Tweet 19
  • Næsta lægð er væntanleg

    14 deilingar
    Share 6 Tweet 4
  • Hæstu okurvextir í heimi – ,,Það er eitthvað að fólki“

    14 deilingar
    Share 6 Tweet 4
  • Tveir milljarðar í félagsþjónustu vegna hælisleitenda í Hafnarfirði

    11 deilingar
    Share 4 Tweet 3
  • Fjöldi umsækjenda um tvö embætti skrifstofustjóra

    3 deilingar
    Share 1 Tweet 1
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?