• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Þriðjudagur, 1. júlí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Allt í klessu

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
4. maí 2018
in Óflokkað
A A
0


Harbinger býður ykkur hjartanlega velkomin á opnun Guðmundar Thoroddsen á sýningunni Allt í klessu. Opnunin á sér stað laugardaginn 5. maí kl 17:00 en sýningin stendur yfir til 26. maí.
Augu, eyru, hattur og nef rembast við að fæðast úr trapisum, sívalningum og afrifum á meðan skaparinn gerir sitt besta til að stía þeim í sundur í tilraun sinni til að forðast fígúrasjón.
Á undanförnum árum hefur Guðmundur verið að skoða karlmennsku og stöðu feðraveldisins, þar sem hann gagnrýnir og hæðist að því á sama tíma og hann upphefur það. Húmorísk og sjálfrýnin verkin eru unnin í fjölbreytta en hefðbundna miðla, s.s. leir, vatnslit, teikningu og málverk. Myndefni fyrri ára voru gjarnan skeggjaðir karlar sem uppteknir voru við ýmsa iðju á borð við körfuknattleik, bjórbruggun og skotveiðar en á síðustu misserum hafa myndirnar orðið æ óhlutbundnari.
Guðmundur Thoroddsen er fæddur 1980 og lauk BA námi í myndlist frá Listaháskóla Íslands árið 2003 og útskrifaðist með með MFA gráðu í myndlist frá School of Visual Arts í New York árið 2011. Hann hefur tekið þátt í fjölda sýninga bæði hér á landi sem og erlendis. Ber helst að nefna einkasýningarnar Father’s Fathers árið 2012, Hobby and Work árið 2013 og Dismantled Spirits árið 2016 í Asya Geisberg Gallery í New York.
Fjallað hefur verið um sýningar hans í ýmsum fjölmiðlum s.s. Artforum, The New York Times, Time Out New York og Dazed Digital. Hann hefur hlotið styrki úr styrktarsjóðum Guðmundu Andrésdóttur, Myndstefs, KÍM og Evrópu unga fólksins, auk Listamannalauna. Guðmundur er á mála hjá Asya Geisberg Gallery í New York og Hverfisgalleríi í Reykjavík.
Sýningin er hluti af sýningaröðinni Við endimörk alvarleikans. Viðfangsefni sýningaraðarinnar er leikur í víðum skilningi, og þáttur hans og vægi í sköpunarferlinu.
Sýningarstjórar eru Halla Hannesdóttir & Steinunn Önnudóttir og er sýningaröðin styrkt af Myndlistarsjóði.
Harbinger sýningarými er styrkt af Reykjavíkurborg.

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Salmonella staðfest

    Salmonella staðfest

    34 deilingar
    Share 14 Tweet 9
  • Áskrifandi að kvóta og leigir fyrir milljónir af sundlaugabar í sólarlöndum

    25 deilingar
    Share 10 Tweet 6
  • Ungar konur réðust á gamla konu og stungu hana og lömdu

    86 deilingar
    Share 34 Tweet 22
  • Strandveiðisjómaður lést

    3 deilingar
    Share 1 Tweet 1
  • Risagjaldþrot Heima ehf. – Heimahúsið í sama húsnæði

    40 deilingar
    Share 16 Tweet 10
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Add New Playlist

No Result
View All Result
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

Fréttatíminn © 2023

Are you sure want to unlock this post?
Unlock left : 0
Are you sure want to cancel subscription?