Mikil óánægja er á meðal smábáta sjómanna sem að stunda handfæraveiðar í Faxaflóa og á Hvalfjarðarsvæðinu. Þar eiga þessir smábátar erfitt með veiðar á færi vegna þess að það eru netatrossur þvers og kruss um allan Hvalfjörð sem að gerir þeim mjög erfitt að stunda veiðar. Málið er rætt á vef Landssambands smábátaeigenda og er lagt til að veiðarnar verði bannaðar.
,, Erling KE 140 er tæplega 370 tonna skip í eigu Saltver ehf í Keflavík. Skipstjóri á Erling er líklega í vandræðum með að finna þorsk innan síns líklega takmarkaða farsviðs og hefur því brugðið á það ráð að treysta á smábátaeigendur til að finna þorskinn fyrir sig.
Mynd: Erling KE-140 Anna Kristjánsdóttir
15-25 smábátar á handfærum hafa frá því snemma í síðustu viku verið við veiðar á litlum bletti í mynni Hvalfjarðar. Vel hefur gengið og afli verið frá 500 kg og upp í 5 tonn á dag. Á fyrsta degi strandveiða sigldu smábátar frá Hafnarfirði, Reykjavík og Akranesi á þessi mið sem höfðu gefið þeim vel dagana á undan.
Það sem við blasti var 370 tonna skip sem var að leggja og draga í annað sinn 10 trossur lagðar þvert á straum á nákvæmlega þeim litla bletti sem smábátarnir höfðu verið við veiðar á og því ómögulegt að stunda þar handfæraveiðar.
Mynd: Fréttatíminn
Smábátaeigendur við Faxaflóa óska skipstjóra og útgerð Erlings til hamingju með næst stærsta túr kvótaársins hjá þeim, en landað var 37 tonnum af slægðum þorski úr 10 trossum í Hvalfirði þennan fyrsta dag strandveiða. Að sjálfsögðu lagði Erling net sín aftur á þennan gjöfula blett.
Á heimasíðu Saltver er Erling sagður aflahæstur netabáta á Íslandi 2013, 2016 og 2017. Skildi það vera að þakka þessum ruddaskap sem útgerð Erlings er að stunda þarna?
Strandveiðibátar í innanverðum Faxaflóa náðu hins vegar litlum árangri þennan dag og örfáir bátar náðu leyfilegum skammti sem er 650 kg af slægðum þorski.
Hér að neðan er myndband sem sýnir hvar smábátar voru búnir að finna mikinn fisk á þessum litla bletti í mynni Hvalfjarðar og síðan sést hvernig net Erlings eru lögð nákvæmlega yfir blettinn.“ Segja smábátasjómenn.
AH – Hér er kort af Hvalfirði og veiðislóð þar.

Umræða