• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Login
Mánudagur, 25. september 2023
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
Frettatiminn
No Result
View All Result

Sigmundur Davíð segir fréttamann RÚV misnota aðstöðu sína og reki þar eigin pólitík

ritstjorn by ritstjorn
4. maí 2018
in Óflokkað
0
Share on FacebookShare on Twitter

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Miðflokksins sakar fréttamann Ríkisútvarpsins, Ævar Örn Jósepsson, um að misnota aðstöðu sína til þess að koma á sig og konu sína höggi opinberlega. Sigmundur Davíð telur það augljóst að Ævar Örn Jósepsson sé að vinna að pólitískri aðför gegn sér í  þágu dóttur sinnar, Þórhildar Sunnu Ævarsdóttur með ítrekuðum neikvæðum fréttaflutningi sínum og að hann sé þar að reka pólitík í skjóli RÚV.


,,Það er nú meira hvað sumir fréttamenn RÚV fá að nota ríkismiðilinn til að reka sína pólitík. Í frétt um frumvarp í breska þinginu, um að sum bresk yfirráðasvæði birti lista yfir eigendur fyrirtækja sem þar eru skráð, lagði fréttamaðurinn lykkju á leið sína til að hnýta í konuna mína.
Eftir vangaveltur um hversu mikið fé væri falið í skattaskjólum „meira og minna utan sjónmáls og seilingar skattayfirvalda“ fylgdi eins og skrattinn úr sauðarleggnum fullyrðing um að eiginkona mín hefði átt svona aflandsfélag.

Það er eins og margoft hefur komið fram rangt. Konan mín hefur aldrei átt „aflandsfélag“ hún sjálf og félag í hennar eigu hafa þvert á móti alltaf verið íslenskir skattaðilar og greitt fullan skatt hér á landi (og meira til) þar sem nafn, skráningarland og eignir hafa verið gefnar upp frá upphafi.
Það er ekki hægt að una því að ríkisfjölmiðillinn sé ítrekað notaður til að vega að eiginkonu minni sem alla tíð hefur lagt sig fram við að standa skil á öllu sínu gagnvart samfélaginu og miklu meira en það.
Maðurinn sem skrifaði og flutti fréttina er faðir þess þingmanns Pírata sem hefur gengið lengst í meinbægni og því að kasta fram ásökunum og rangfærslum í minn garð og margra annarra samstarfsmanna.
Ýmsir ættingjar mínir og vinir hafa miklar skoðanir á ýmsum stjórnmálaflokkum og -mönnum. Ætli einhver þeirra geti fengið vinnu hjá ríkisstofnuninni til að koma sjónarmiðum sínum á framfæri í fréttum? Það myndi eflaust nægja þeim að fá að segja rétt frá.“  Segir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Miðflokksins.
  • Kona í gæsluvarðhaldi vegna rannsóknar á andláti karlmanns á sextugsaldri

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • 84 milljónir eða 215 milljónir – ,,Ekkert annað en opinber glæpastarfsemi“

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • Óánægð með rannsókn á eignatengslum í sjávarútvegi

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • Stærsti skjálftinn var 3,25 – Fimmtíu skjálftar hafa mælst

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • Verð í Fríhöfninni – Allt að 43% dýrari á leiðinni heim

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
ADVERTISEMENT

Fréttatíminn © 2023

No Result
View All Result
  • Home
  • Landing Page
  • Buy JNews
  • Support Forum
  • Contact Us

Fréttatíminn © 2023

Welcome Back!

Login to your account below

Forgotten Password?

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Log In
Are you sure want to unlock this post?
Unlock left : 0
Are you sure want to cancel subscription?