• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Mánudagur, 30. júní 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Áform um nýja uppbyggingu í hjarta Hafnarfjarðar

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
4. júní 2021
in Fréttir, Innlent
A A
0
Nýjar hugmyndir að metnaðarfullri uppbyggingu í miðbæ Hafnarfjarðar voru kynntar á fundi bæjarráðs Hafnarfjarðar í morgun. Fyrri áform um uppbyggingu á 100 herbergja hóteli að Strandgötu 26-30 í Hafnarfirði hafa þróast í spennandi hugmyndir og áform um matvöruverslun og þjónustu á jarðhæð, nýtt nútíma bókasafn og margmiðlunarsetur, almenningsgarð á 2. hæð og hótelíbúðir í smáhýsum sem liggja við Strandgötuna. Ef af verður er ljóst að nýtt kennileiti í hjarta Hafnarfjarðar er við það að rísa sem byggir á hönnun og skipulagi sem mun efla og auðga líf og anda miðbæjarins.

Græn svæði og hönnun sem ýtir undir lifandi miðbæ

Verkefnið er leitt af félaginu 220 Miðbær ehf sem er eigandi byggingarreitsins. Með breyttum áformum er verið að svara ákalli íbúa, Hafnarfjarðarbæjar og fyrirtækja á svæðinu um matvöruverslun í miðbæinn, græn svæði og hönnun sem ýtir undir lifandi miðbæ. Hugmyndirnar eru í góðu samræmi við skýrslu starfshóps um skipulag miðbæjarins, þar sem sérstaklega er horft til þess að tryggja góða blöndu verslunar-, þjónustu og íbúða. Gildandi deiliskipulag heimilar 6400 m2 nýbyggingu á 5 hæða hóteli með verslun og þjónustu á jarðhæð og 2ja hæða tengibyggingu milli hótels og verslunarmiðstöðvarinnar Fjarðar. Nýjar hugmyndir gera ráð fyrir að byggingarmassi verði færður inn að Fjarðargötu 13-15 og hús sem skapa götumynd Strandgötu verði lækkuð úr 5 hæðum niður í 1-3 hæðir með inndregna 4. hæð. Um er að ræða byggingarreit upp á 1.750 fermetra og hljóðar samþykkt deiliskipulag í dag upp á 5.980 fermetra byggingarmagn á lóð.

„Þessi hugmyndir að uppbyggingu í miðbæ Hafnarfjarðar eru mjög spennandi og munu efla hann enn frekar og ýta undir sérstöðuna. Miðbærinn okkar hefur verið að blómstra og dafna undanfarin ár og mikilvægt að við sem sveitarfélag svörum ákalli íbúa og fyrirtækja og ýtum undir áframhaldandi vöxt með því að opna á tækifæri og möguleika fyrir fjölbreytta starfsemi og þjónustu, til samveru, skemmtunar og sköpunar. Þessar nýju hugmyndir falla að mínu mati afar vel að umhverfinu, gömlu byggðinni og sjarma bæjarins“ segir Rósa Guðbjartsdóttir bæjarstjóri Hafnarfjarðar.

Bæjarráð Hafnarfjarðar tók jákvætt í hugmyndir skipulagshöfunda og lagði sérstaka áherslu á að hugmyndin og hugmyndafræðin yrði vel kynnt bæjarbúum í næstu skrefum.

Mynd 1:  Fyrirhuguð uppbygging séð úr lofti.  Mynd 2: Uppbygging frá Strandgötu séð – horft til suðurs

Sjá lið 6 í fundargerð bæjarráðs Hafnarfjarðar: Fundargerðir | Hafnarfjörður (hafnarfjordur.is) – þar sem m.a. má finna fleiri myndir í kynningu skipulagshöfunda.

Umræða
Share2Tweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Salmonella staðfest

    Salmonella staðfest

    27 deilingar
    Share 11 Tweet 7
  • Strandveiðibátur sökk úti fyrir Patreksfirði

    16 deilingar
    Share 6 Tweet 4
  • Áskrifandi að kvóta og leigir fyrir milljónir af sundlaugabar í sólarlöndum

    22 deilingar
    Share 9 Tweet 6
  • Ungar konur réðust á gamla konu og stungu hana og lömdu

    84 deilingar
    Share 34 Tweet 21
  • Strandveiðisjómaður lést

    3 deilingar
    Share 1 Tweet 1
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?