Samherjamálið er eins og handrit úr spennusögu
Forsvarsmenn Frjálslynda Lýðræðisflokksins funduðu með Jóhannesi Stefánssyni til að hlusta á frásögn hans um reynslu hans af uppljóstrun hans á spillingu á alþjóðavísu og tengist eins og kunnugt er Íslandi í hinu svokallaða Samherjamáli.
Það var fræðandi fyrir hópinn að heyra hans sögu og hvað einn einstaklingur getur áorkað í hörðum heimi þar sem lýsingar minna stundum á handrit úr spennusögu. Farið var yfir víðan völl á fundinum og það er ljóst að talsvert á enn eftir að koma í ljós opinberlega, þegar rannsakendur hafa lokið rannsókn á málinu.
Menn voru hugsi eftir fundinn og veltu fyrir sér hvað hægt er að gera til verndar einstaklingum sem koma fram og einnig hvað drífur slíka einstaklinga áfram, þegar auðveldasta leiðin væri að líta til hliðar.
Eftir situr hugsunin um gullnu regluna það sem þer viljið að aðrir menn gjöri yður skuluð þið þeim gjöra. Og líka er ekki verra að lifa lífinu þannig að maður geti litið i spegil. Þess má geta að umfang uppljóstrana Jóhannesar Stefánssonar er umtalsverð og það er mikil vinna sem unnin hefur verið af yfirvöldum í Namibíu og fleiri löndum. Eftir að Jóhannes Stefánsson hætti hjá Samherja, héldu mútugreiðslur fyrirtækisins í Namibíu áfram og urðu mun umfangsmeiri og þær upphæðir sem þar um ræðir eru mjög háar.