Rannsókn fellur niður
Fyrr í dag afturkallaði Síldarvinnslan samrunatilkynningu sem varðaði kaup fyrirtækisins á helmingshlut í Ice Fresh Seafood af Samherja. Fullnægjandi samrunatilkynning barst hinn 9. febrúar 2024 og hófst þá rannsókn á samkeppnislegum áhrifum samrunans. Með afturköllun tilkynningarinnar í dag er rannsókninni sjálfhætt, þar sem fyrir liggur að ekki verður af hlutaðeigandi samruna.
Eðli máls samkvæmt og í samræmi við lögbundnar skyldur sínar tók Samkeppniseftirlitið samrunann til rannsóknar. Með frétt á heimasíðu Samkeppniseftirlitsins þann 28. febrúar sl. gerði eftirlitið grein fyrir rannsókninni og gaf öllum færi á því að koma á framfæri umsögnum, athugasemdum og/eða sjónarmiðum um viðskiptin.
Rannsókn laut m.a. að stjórnunar- og eignatengslum
Í áðurgreindri frétt gerði eftirlitið m.a. grein fyrir því að liður í rannsókninni væri að ganga úr skugga um eignar- og stjórnunarleg tengsl fyrirtækjanna og hvort breytingar á yfirráðum væru víðtækari en samrunatilkynningin gæfi til kynna. Hvernig yfirráðum er háttað er almennt lykilatriði í samrunamálum. Þannig var m.a. til skoðunar hvort félögin væru þegar (eða yrðu með samrunanum) svo tengd innbyrðis að líta bæri á þau sem eitt og sama fyrirtækið (í samkeppnisrétti nefnt ein efnahagsleg eining).
Eftir nánari athugun tilkynnti Samkeppniseftirlitið samrunaaðilum þann 14. mars sl. að nauðsynlegt væri að rannsaka samrunann frekar, þ.e. að færa beri rannsóknina á svokallaðan annan fasa. Gerð var grein fyrir þessu með frétt á heimasíðu eftirlitsins þann 27. mars sl. Jafnframt voru frestir til umsagna framlengdir.
Óskað upplýsinga og gagna
Að undangenginni frekari rannsókn átti Samkeppniseftirlitið fund með samrunaaðilum þann 29. apríl sl. Á fundinum óskaði Samkeppniseftirlitið eftir upplýsingum um tiltekin atriði, í því skyni að stuðla að markvissri frekari gagnaöflun og þannig flýta málsmeðferðinni. Forstjóri Síldarvinnslunnar og lögmenn svöruðu spurningum eftirlitsins og veittu margvíslegar upplýsingar á fundinum. Á fundinum gerði Samkeppniseftirlitið jafnframt grein fyrir stöðu rannsóknarinnar og veitti upplýsingar um málsmeðferðina.
Í framhaldi af fundinum sendi Samkeppniseftirlitið samrunaaðilum rökstudda beiðni um frekari upplýsingar. Þar óskaði Samkeppniseftirlitið eftir nánari upplýsingum og gögnum um starfsemi Ice Fresh Seafood, aðstæður á markaði, samstarf samrunaaðila, skjölum um viðskiptin sem vísað hafði verið til en ekki höfðu verið afhent, ásamt upplýsingum um sölunet og félög fyrirtækjanna erlendis. Jafnframt var óskað eftir tilteknum innanhússgögnum er vörðuðu einkum aðdraganda viðskiptanna. Þá var óskað eftir því að Síldarvinnslan léti eftirlitinu í té innanhússgögn um samskipti stjórnenda félaganna sem í hlut eiga, sem varpa myndu nánara ljósi á tengsl þeirra.
Tilkynning afturkölluð áður en öll gögn höfðu verið afhent
Í framhaldi af frekari samtölum og fundi með samrunaaðilum hefur hluti umbeðinna gagna borist. Hins vegar fengu samrunaaðilar viðbótarfrest til þess að skila hluta gagnanna, þ. á m. innanhússgögnum sem varpa nánara ljósi á samskipti og tengsl félaganna. Frestur til að skila þessum gögnum var gefinn til loka þessarar viku, eða til föstudagsins 7. júní.
Með afturköllun samrunatilkynningarinnar í dag eru forsendur brostnar til frekari rannsóknar í þessu máli. Hefur verið óskað eftir því af hálfu samrunaaðila að veittum gögnum í málinu verði skilað. Samkeppniseftirlitið mun svara þeirri beiðni á næstunni, í samræmi við gildandi lagafyrirmæli.
Í tilkynningu stjórnar Síldarvinnslunnar til fjölmiðla er því haldið fram að Samkeppniseftirlitið hafi farið offari við skoðun málsins og að gagnabeiðnir hafi ekki verið í samræmi við umgjörð viðskiptanna. Þessi fullyrðing stjórnar Síldarvinnslunnar er röng að mati Samkeppniseftirlitsins þegar horft er til lögbundins hlutverks stofnunarinnar, meðferðar málsins, þeirra leiðbeininga sem samrunaaðilum hafa verið veittar og gagnaöflunar í öðrum samrunamálum.