• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Miðvikudagur, 14. maí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Skóflustunga tekin að nýju húsi heilbrigðisvísinda

Skóflustunga tekin að nýju húsi heilbrigðisvísinda

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
4. júlí 2023
in Fréttir, Innlent
A A
0
Fyrr í dag var tekin formleg skóflustunga vegna nýs húss Heilbrigðisvísindasviðs Háskóla Íslands á lóð Landspítalans í Vatnsmýri. Húsið mun gjörbylta aðstöðu til kennslu og rannsókna í heilbrigðisvísindum en í því munu nær allar deildir Heilbrigðisvísindasviðs sameinast í nýrri rannsókna- og kennslubyggingu. Áætlað er að húsið verði risið á Hringbrautarsvæðinu í nágrenni nýs Landspítala síðla árs 2026 en það verður hátt í 10.000 fermetrar að flatarmáli.

Frumathugun á nýju húsnæði fyrir heilbrigðisvísindi innan Háskóla Íslands hófst árið 2005 og á þeim hartnær tuttugu árum sem eru liðin hafa ýmsir vinnuhópar innan HÍ og víðar komið að hönnun kennslurýma, rannsóknarstofa og skrifstofurýma. Núverandi útfærsla á húsnæðinu er því afrakstur áralangrar þróunar og vinnu sem efla mun kennslu, rannsóknir og nýsköpun á sviði heilbrigðisvísinda.

Heilbrigðisvísindi HÍ undir eitt þak

Fyrir hönd Háskóla Íslands munduðu eftirfarandi skóflurnar: Jón Atli Benediktsson rektor, Unnur Þorsteinsdóttir, forseti Heilbrigðisvísindasviðs og nemarnir Sigríður Helga Kárdal Ásgeirsdóttir og Daníel Thor Myer, sem bæði eru í sviðsráði Heilbrigðisvísindasviðs og í stúdentaráði HÍ. Ásdís Halla Bragadóttir, ráðuneytissjóri Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytisins tók skóflustunguna í fjarveru Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur ráðherra og Runólfur Pálsson, forstjóri Landspítala, beitti skóflunni fyrir hönd Landspítala háskólasjúkrahúss.

„Þetta er mikill gleðidagur,“ sagði Jón Atli, rektor HÍ, á byggingasvæðinu í dag en húsið mun rísa austan við Læknagarð sem hýsir nú hluta af starfsemi Heilbrigðisvísindasviðs. 

„Við höfðum sett okkur það markmið í stefnu skólans að ljúka við byggingu húsnæðis fyrir Heilbrigðisvísindasvið HÍ og því er það einkar ánægjulegt að finna þann upptakt sem er í verkinu.  Á fáum sviðum starfar Háskóli Íslands jafnnáið með atvinnulífinu og á sviði heilbrigðismála og Landspítalinn er okkar stærsti og nánasti samstarfsaðili. Í húsinu sem hér mun rísa munum við mennta stóran hluta þess fólks sem sinnir afar brýnum störfum í heilbrigðiskerfinu á Íslandi. Það er því afar gleðilegt að hér verður aðstaða til kennslu og rannsókna sambærileg við það sem best gerist á heimsvísu.“  

Ásdís Halla Bragadóttir, ráðuneytisstjóri  Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytisins, sagði að frá stofnun nýs ráðuneytis hefði rík áhersla verið lögð á að styðja við uppbyggingu heilbrigðisvísinda, gæði náms og fjölgun nemenda í heilbrigðisvísindum. Nýtt hús Heilbrigðisvísindasviðs HÍ væri einn mikilvægasti hlekkurinn í því.

„Ætlunin að fjölga nemendum í læknisfræði úr 60 í 90 í nokkrum skrefum til 2028 og hjúkrunarfræðinemum úr 120 í 150 í HÍ. Með nýrri aðstöðu verður jafnframt hægt að bæta námið, auka gæðin, efla rannsóknir, vísindi og nýsköpun.“

Hún sagði ennfremur að hröð öldun þjóðarinnar kallaði ekki einungis á mun fleiri útskrifaða nemendur í heilbrigðisvísindum heldur einnig á aukna nýsköpun í heilbrigðisþjónustu sem ný og betri aðstaða eigi að geta ýtt undir. „Dagurinn ídag er mikilvægur áfangi á þeirri vegferð.“

Unnur Þorsteinsdóttir, forseti Heilbrigðisvísindsviðs, sagði það von allra að það umhverfi sem skapist í nýja húsinu muni verða þjóðinni allri til heilla.

„Sameining eininga á sviði heilbrigðisvísinda undir einu þaki mun leiða til meiri samvinnu þvert á þær allar jafnt í kennslu sem rannsóknum. Stoðþjónusta deilda og sviðs sameinast hér í öfluga heild sem vinnur þvert á deildir. Þegar fjölbreytt starfsemi sviðsins er komin undir sama þak má gera ráð fyrir enn frekari grósku og nýsköpun á sviði heilbrigðisvísinda enda mun húsnæðið halda vel utan um þann mannauð sem býr á sviðinu. Þeir miklu rannsóknarinnviðir sem hafa verið að byggjast upp í lífvísindum á undanförnum árum munu einnig vera undir sama þaki í nýju Heilbrigðisvísindahúsi sem mun leiða til betri nýtingar tækja og efla samvinnu og gæði rannsókna í lífvísindum,“ sagði Unnur.

Runólfur Pálsson, forstjóri Landspítala, sagði það mikið fagnaðarefni að nú hilli loks undir að framkvæmdir hefjist við nýtt hús Heilbrigðisvísindasviðs á Hringbrautarlóðinni.

„Um þrjú þúsund nemendur í heilbrigðisvísindagreinum stunda nám og sækja þjálfun sína á Landspítala. Þá eru margir sameiginlegir starfsmenn beggja stofnana. Hús Heilbrigðisvísindasviðs á ekki aðeins eftir að styrkja þessa nánu samvinnu Landspítala og Háskóla Íslands við að mennta fólk til starfa í heilbrigðisþjónustu heldur einnig efla vísindastarfsemi stofnanna. Hlutverk Landspítala sem háskólasjúkrahús styrkist án efa mikið með sameiningu Heilbrigðisvísindasviðs Háskóla Íslands í hinu nýja húsi við Hringbraut,“ sagði Runólfur sem ennfremur er prófessor við Læknadeild HÍ.

Mikil umbylting á sviði heilbrigðisvísinda

Nýbyggingin mun tengjast Læknagarði sem verður jafnframt endurgerður. Húsnæðið verður sérhannað miðað við þarfir sviðsins, kennslu- og rannsóknaaðstaða verður eins og best verður á kosið.  Við hönnun er tekið mið af ólíkum notendahópum og er áhersla lögð á sveigjanleika í nýtingu rýma, algilda hönnun, góða hljóðvist, dagsbirtu og innivist s.s. loftræsingu og hitastig. Hönnuðir eru Verkís verkfræðistofa, TBL arkitektar og JCA arhcitecture.

Byrjað verður á að reisa nýbygginguna mjög fljótlega og er áætlað að hún verði tilbúin til notkunar í lok árs 2026. Stefnt er að því að endurbótum á Læknagarði ljúki um áramótin 2027-2028. Gert er ráð fyrir að hluti af starfsemi Heilbrigðisvísindasviðs verði flutt í nýju bygginguna áður en hafist verður handa við endurgerð Læknagarðs. Er það gert til að halda samfellu í starfi sviðsins.

Húsið Eirberg, sem frá upphafi hefur hýst Hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideild HÍ á Landspítalalóðinni, verður nýtt áfram af sviðinu eftir því sem þörf krefur.

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Snjóaði hressilega sunnan- og suðvestanlands

    Fíkniefnasali hlær að bönkunum og lánar á betri kjörum

    131 deilingar
    Share 52 Tweet 33
  • 48 dagar verði felldir niður – 20% hærra verð fyrir krókafisk

    34 deilingar
    Share 14 Tweet 9
  • Íslendingar í Panama-skjölunum – Aflandsfélög í skattaskjólum?

    91 deilingar
    Share 36 Tweet 23
  • Kvörtuðu yfir meintum ólöglegum símhlerunum – Fengu margra ára fangelsisdóma fyrir glæpi

    29 deilingar
    Share 12 Tweet 7
  • Kanada lifir sníkjulífi á Ameríku & Carney wefur örlög þjóðarinnar …

    15 deilingar
    Share 6 Tweet 4
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?