Karlmaður á fertugsaldri var í fyrradag í héraðsdómi Reykjavíkur úrskurðaður í tveggja vikna gæsluvarðhald að kröfu lögreglunnar á Höfuðborgarsvæðinu í þágu rannsóknar hennar á alvarlegum kynferðis- og ofbeldisbrotum.
Maðurinn er grunaður um að hafa brotið gegn tveimur konum í aðskildum málum á höfuðborgarsvæðinu um verslunarmannahelgina. Úrskurðurinn hefur verið kærður til Landsréttar. Ekki er hægt að veita frekari upplýsingar að svo stöddu.
Umræða