Öxi dregin upp í átökum í Smáralind
Laust fyrir klukkan sex í gærkvöldi var tilkynnt um slagsmál í Smáralind. Samkvæmt tilkynningunni hefði einstaklingur borið fyrir sig öxi í átökunum.
Lögregla fór rakleiðis að vettvagni, handtók ætlaða árásarmenn umsvifalaust og lagði hald á öxi sem fannst við öryggisleit. Þetta kemur fram í pósti frá Lögreglunni og sá sem varð fyrir árásinni er sagður með minniháttar áverka. Vísir hefur eftir lögreglu að fólkið þekkist og um einhvers konar skuldauppgjör hafi verið að ræða. Karlinn og konan eru nú vistuð í fangageymslu.
Nokkrar tilkynningar bárust lögreglu í gærkvöldi um ölvaða menn sem áreittu gangandi vegfarendur og voru almennt til ama í miðborginni. Um kvöldmatarleitið varð annar þeirra á vegi lögreglu. Hann var handtekinn og vistaður í fangageymslu þar sem af honum rynni áfengisvíman.
Um þrjú leitið í nótt var gerð tilraun til innbrots í skóla í Kópavogi. Þjófnum tókst ekki að athafna sig lengi og kom sér undan tómhentur.
Lögreglumenn stöðvuðu akstur tveggja ökumanna undir áhrifum í austurborginni í nótt. Annar er grunaður um akstru undir áhrifum áfengis, en hinn undir áhrifum fíkniefna.