Samfylkingin í sókn – Ríkisstjórnarflokkarnir með aðeins 41% fylgi
Helsta breytingin á fylgi flokka milli mánaða er að fylgi Samfylkingarinnar eykst um tæplega þrjú prósentustig.2 Rúmlega 19% segjast myndu kjósa Samfylkinguna og er það mesta fylgi sem flokkurinn hefur mælst með síðan í janúar 2015. Fylgi annarra framboða breytist lítið eða á bilinu 0,1-1,9 prósentustig.
Nær 23% segjast myndu kjósa Sjálfstæðisflokkinn, rösklega 12% Pírata, næstum 12% Vinstri græn, liðlega 10% Viðreisn, tæplega 9% Miðflokkinn, ríflega 8% Framsóknarflokkinn, nær 6% Flokk fólksins og liðlega 1% segist myndu kjósa aðra flokka en þá sem sæti eiga á Alþingi í dag.
Rúmlega 9% svarenda segjast myndu skila auðu eða ekki kjósa ef kosið yrði til Alþingis í dag og rösklega 8% taka ekki afstöðu eða neita að gefa hana upp. Fylgi við ríkisstjórnina stendur í stað milli mánaða, en um helmingur þeirra sem tóku afstöðu segjast styðja hana.
Spurt var: Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk myndir þú kjósa? En hvaða flokkur yrði líklegast fyrir valinu? Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna? Styður þú ríkisstjórnina?
1 Fylgi Pírata mælist 12,46% og námundast því niður í 12% í þróunarmyndinni. 2 Breyting á fylgi Samfylkingarinnar milli júlí og ágúst er 2,6 prósentustig en fylgið fer úr 16,7% í 19,3%. Vegna námundunar í þróunarmyndinni virðist breytingin aðeins tvö prósentustig milli mánaða.
Þjóðarpúls Gallup September 2018
Niðurstöður sem hér birtast um fylgi flokkanna á landsvísu eru úr netkönnun sem Gallup gerði dagana 2. ágúst til 2. september 2018. Heildarúrtaksstærð var 7.094 og þátttökuhlutfall var 52,6%. Vikmörk á fylgi við flokka eru 0,4-1,5%. Einstaklingar í úrtaki voru handahófsvaldir úr Viðhorfahópi Gallup.