,,Sigurður Ingi Jóhannsson, samgönguráðherra lofar nýrri brú yfir Ölfusá við Selfoss í lok ársins 2023 eða árið 2024 og innheimtur verður vegatollur yfir hana. Framkvæmdir við brúna verða boðnar út eftir þrjá mánuði. Brúin er sögð muna kosta um sex og hálfan milljarða króna samkvæmt minnisblöðum en mjög rík hefð er fyrir því þegar ríkið er annars vegar að slíkar tölur hækki töluvert og jafnvel tvöfaldist reikningurinn í sumum tilvikum eins og reynsla undanfarinna áratuga staðfestir. Þann reikning, upp á marga milljarða, á að láta sunnlendinga borga.
Magnús Guðbergsson, oddviti Suðurkjördæmis fyrir Frjálslynda lýðræðisflokkinn mótmælir harðlega þeim áformum ríkisstjórnarinnar að láta fólk á Suðurlandi greiða fyrir Ölfusárbrú í formi vegtolla næstu áratugi, eins og Framsóknarflokkurinn og ríkisstjórnin ætla sér að gera. ,,Þetta dæmi er mjög einfalt fyrir þá sem vilja sjá það:
Ný Ölfusárbrú er = Hrun á fasteignaverði, ferðaþjónustu og atvinnustarfsemi á Suðurlandi og skert lífskjör allra íbúa á öllu Suðurlandi. Þessi áform ríkisstjórnarinnar er alveg út í hött að ætla að láta fólk á Suðurlandi greiða fyrir sjálfsagða vegaframkvæmd við þjóðveg númer eitt.
Þessir vegtollar yfir brú til að komast t.d. á Selfoss munu koma illa við alla þá uppbyggingu sem hefur orðið þar á undanförnum árum. Fólk af Höfuðborgarsvæðinu og í sumarhúsabyggðum, hefur vanið komur sínar þangað um helgar til að njóta nýja miðbæjarins sem hefur m.a. að geyma frábæra Mathöll og flottar byggingar og margt fleira. Ferðamenn hafa einnig lagt leið sína á staðinn, en þegar allur sá fjöldi sem hefur fyllt miðbæinn, þarf svo að fara að borga vegtolla til að komast þangað, þá geta þessir staðir einfaldlega lokað með tilheyrandi gjaldþrotum, því engin mun lengur koma á Selfoss.
Vegtollarnir munu þýða hrun í ferðaþjónustu og hrun á fasteignaverði á Suðurlandi. Ég hef einnig áhyggjur af gamla fólkinu, mun það hætta að fá heimsóknir frá ættingjum sem veigra sér við að borga gjald yfir Ölfusárbrú, fram og til baka sama daginn? Öryrkjar og eldri borgarar og þeir sem minna hafa á milli handanna, þetta er bein aðför að lífsgæðum þeirra sem minna hafa en ríkisstjórninni er alveg sama um það fólk eins og um íbúa Suðurlands.
Með því að láta stórútgerðina greiða sanngjarnt veiðigjald og stórfyrirtækin eðlilega skatta, þá þyrftum við ekki að horfa á endalausa hnignun á innviðum í okkar ríka samfélagi.
Flokkurinn er alfarið á móti margra milljarða vegtolli sem verður lagður á vegfarendur á þjóðvegi 1, næstu áratugi til að komast yfir Ölfusárbrú. Þetta er ekkert annað en ósanngjarn landsbyggðaskattur sem leggst þyngst á sunnlendinga og rýrir verð fasteigna á svæðinu og hefur neikvæð og hamlandi áhrif á atvinnulíf og allt Suðurland. Frjálslyndi lýðræðisflokkurinn mun aldrei leggja eina krónu á vegfarendur í formi vegtolla á alfaraleið á þjóðvegum landsins og er það meitlað í stefnu flokksins og hægt að lesa í lið. nr.13 á síðu flokksins.
Frábært er að fá nýja brú yfir Ölfusá og það væri frábært að fá hraðbraut fram hjá Reykjavíkurborg sem færi beint austur og norður. Þetta myndi allt stytta ferðatíma og minka kolefnisspor þjóðarinnar. Enga vegtolla!
Ég heiti því sem oddviti Suðurkjördæmis fyrir Frjálslynda lýðræðisflokkinn að ég mun mótmæla þessari aðför að sunnlendingum af fullri hörku og vona að þið styðjið mig til þess að mótmæla þessu ranglæti.“